fimmtudagur, nóvember 13, 2003

Ég efast STÓRLEGA um að það sé til meiri klaufi en ég!! ætla ekkert nánar útí það held ég... :D
Er á fullu núna að gera mig sæta fyrir leikhúsferð! Er að fara með Dóru og Karó og öllum íslensku áfanganum á eitthvað leikrit sem við þurfum að sjá til að geta náð áfanganum... :S þannig að við verðum víst að láta okkur hafa það.... en við gerum eitthvað skemmtilegt úr þessu eins og við erum vanar :D hehe !

þriðjudagur, nóvember 11, 2003

Hahaha :D ég kem víst í norskri auglýsingu fyrir skóladagbók :D Karó og Ásrún þóttust nú ekki eiga svoleiðis (right stelpur mínar ;P hehe), en ég sló bara til , enda hver vill ekki vera frægur í NOREGI?!?! ;D hehe .... Svo erum við þrjár gellurnar náttúrlega orðnar frægar í HOLLANDI, þar sem við komum í einhverju hollensku unglingablaði... :D hvar ætli við sláum næst í gegn?? hmm.... pæling.... ;)

mánudagur, nóvember 10, 2003

Það var ekkert smá gaman í leikfimistímanum í dag! það var ekki jógatími heldur næstu tvo mánudaga erum við í dansi!! :) það var ótrúlegt stuð sko! ég og Dóra ætluðum bara að dansa saman en koma þá ekki bara tveir algerir töffarar og spurja hvort við værum ekki til í að dansa við þá... :D og við náttúrlega fórum ekki að segja nei við þessa gaura sko.. ;) hehe! en já þetta heppnaðist alveg ágætlega sko.... ég og minn "dance partner" ;P vorum bara með sér sýningu liggur við, því þegar við gleymdum sporunum fór hann bara að snúa mér í hringi og læti! :D leit örugglega mjög professional út :D hehe!

sunnudagur, nóvember 09, 2003

Vá hvað það getur verið ömurlegt að vakna einn á sunnudagsmorgni ... sérstaklega þegar það er ógeðslegt veður úti og manni langar til að kúra með einhverjum!!! verð nú að viðurkenna það að ég sakna þess þó nokkuð...!
Ákvað að velja Saving private Ryan til að skrifa um fyrir söguverkefnið þannig að ég tók hana í gær og horfði á hana og vá! Þetta er svakaleg mynd sko! þó hún hafi nú verið slatti löng þá tekur maður nú ekkert eftir því þegar maður byrjar að horfa!
Búin að fá próftöfluna og alles og hún er bara alls ekki nógu góð :S fer í 5 próf og fer til dæmis í jarðfræði og sálfræði á sama degi með klukkutíma á milli.... GREAT! en svo er ég alveg búin í prófunum 10. des... það verður sko ljúft :D

föstudagur, nóvember 07, 2003

God hvað ég er ekki að nenna að gera þetta verkefni sem við eigum víst að vera að gera núna, þannig að ég er bara að gera eitthvað ALLT annað... :D
Ég var bara nokkuð sátt við hvernig bachelor endaði.... Haffi varð geðveikt hissa á mér þegar hann komst að því að ég fylgdist með því... held að hann hafi eiginlega bara hneykslast á mér :D vá hvað ég horfi samt lítið á sjónvarp eitthvað... kannski útaf því að ég er eiginlega alltaf einhver staðar annars staðar en heima hjá mér... gæti verið ástæðan :D

fimmtudagur, nóvember 06, 2003

Fór á Verzlóballið í gærkvöld og kom það mjög óvart, því það var bara einstaklega gaman á því.... Var reyndar EINSTAKLEGA mygluð þegar ég vaknaði í morgun en ákvað að vera hörkudugleg og skrópa ekki til að getað sofið meir.... það var samt ótrúlega erfið ákvörðun!! :D
Annað kvöld er svo Óðríkur Algaula og ætli maður skelli sér ekki á það og sjái svo til með framhaldið... semsagt hvað maður gerir á eftir það.... það er pæling sko... ;)
Ég verð nú að hrósa henni Dóru sko!! Gellan sú er byrjuð að blogga aftur eftir þó nokkra pásu... gaman að því :)

laugardagur, nóvember 01, 2003

Já ég semsagt átti afmæli í dag... ég er semsagt orðinn 19 ára vitleysingur :D byrjaði að fá hamingjuóska sms akkúrat á miðnætti og svo var síminn á fullu fram eftir degi... fékk meiri að segja sms og upphringingar frá fólki sem ég átti ekki beint von á að fá frá... en það var nú bara gaman að því... veit ekki um neina manneskju sem gleymdi mér... enda eins gott fyrir þá!! hehe neinei segi nú bara svona! eða jú reyndar... mamma gleymdi því... fattaði það svo 20 mínutum eftir að ég var vöknuð... er það nú sko... hmm.. :D svaka stuð í skólanum í dag... sungið fyrir mann og alles í sálfræðitímanum sem lífgaði reyndar svolítið uppá langann tímann.... svo þegar ég kom heim byrjaði heimasíminn líka að hringja... algert símavændi mætti halda.. :D svo komu gestir og þegar þeir voru farnir dró mamma mig með í búðarleiðangur til að finna afmælisgjöf handa mér... ( fann nú ekkert spes samt) og svo um kvöldið bauð mamma mér og Eddu út að borða... rosa fínt allt... svo bara tók ég því óeðlilega rólega miðað við að þetta er nú ég... horfði á idolið og svo komu Haffi og Krissi með pakka handa mér, geðveikt flott enda er ég ekkert smá ánægð með hann ;) thanx guys!

miðvikudagur, október 29, 2003

Merkisdagur eftir 2 daga!! getið nú....
Annars ætla ég bara að taka því rólega þá... enda verður tekið á djamminu á laugardaginn :D fyrsti föstudagurinn í LANGAN tíma sem ég stefni á að vera bara heima eða eitthvað álíka... nema einhver stingi uppá einhverju heví sniðugu sem ég bara get ekki neitað :D hehe!

þriðjudagur, október 28, 2003

You're Perfect ^^
-Perfect- You're the perfect girlfriend. Which
means you're rare or that you cheated :P You're
the kind of chick that can hang out with your
boyfriend's friends and be silly. You don't
care about presents or about going to fancy
placed. Hell, just hang out. You're just happy
being around your boyfriend.


What Kind of Girlfriend Are You?
brought to you by Quizilla

jahá.... gaman að því...
Við Dóra erum nú alveg ferlegar sko í þessum skólamálum!! ætluðum að vera geðveikt duglegar að læra saman í gærkvöldi en það fór náttúrlega eins og það fer alltaf þegar við ætlum að læra saman.... Förum alltaf að gera eitthvað ALLT annað sko.... vorum bara eitthvað að flippast og læti og svo ákváðum við að kíkja bara smá á rúntinn með rúntfélögunum miklu sko :D hehe! Vorum náttúrlega engan vegin tilbúnar í þetta próf í dag þannig að við tökum það bara í næstu viku, sem er betra...