sunnudagur, desember 07, 2003

Það mun líklega taka mig nokkra daga að laga til í þesu blessaða herbergi mínu... var ekkert smá bjartsýn áðan að ég gæti bara klárað þetta af einn, tveir og þrír en það er víst hægara sagt en gert.... enda ekki neitt smá herbergi :S og ekki flýtti það fyrir mér að síminn er búinn að vera rauðglóandi hérna sko ... en það er bara stuð ;) get alltaf tekið mér pásu til að tala við skemmtilegt fólk :)
Anyways... við megabeibsin ( við Dóra sko :D) ákváðum að skella okkur í borgarnesið bara á laugardagsnóttina.... semsagt kíkja smá á strákana í bústaðinn.... tókum svo Solveigu og Hildi með okkur og varð þetta hið skemmtilegasta ferðalag á okkur :D létum þá ekkert vita að við værum að koma og sögðum þeim að það væri strippari á leiðinni og þeir voru það fullir að ég held að þeir hafi alveg trúað því sko :D voru samt ekkert smá ánægðir þegar við birtumst þarna ! reyndar allt kolvitlaust hjá strákunum.... Krissi fékk glerbrot í fótinn og Patti ákvað að ráðast bara á Kalla og kýldi hann í magann og læti, og Kalli skallaði rúðu sem brotnaði náttúrlega og svo fengu Haffi og Hjalti grill úr næsta bústað "lánað" og rústuðu öllu sem hægt var að rústa ....
Við Dóra tókum því svo bara rólega í gær og skelltum okkur í bíó..... master and commander varð fyrir valinu ! fórum eittthvað að vesenast í apotekinu áður til að kaupa ýmislegt... sem við eigum nóg af allavega núna í öllum sortum og gerðum ;) hehe ekkert nánar útí hvað það var.. hmm... ;P en allavega við vissum ekki hvað málið var með öryggisvörðinn maður... hann elti okkur á röndum, við náttúrlega erum sko með þjófa lúkkið uppá 10 ekki satt... :D

föstudagur, desember 05, 2003

jæja já...þá eru 5 próf búin og bara 1 eftir ! það er sko stuð !! er meiri að segja búin að ná þjóðhagfræðinni... fékk glæsilega sjöu :D er nú samt ekki svona bjartsýn um restina... :s en það verður bara að koma í ljós....
Var að koma úr strípum og smá klippingu ! er geggjað ánægð með þetta sko, bara groovy chick sko ;P
Við Dóra erum búnar að ákveða að fara ekki í bústaðinn til strákanna núna um helgina... stóð alltaf til að skella sér enda drykkir að mínu skapi á boðstólnum :D heheh
en svo fór sem fór en það er bara þeirra missir ! ;) núna verðum við bara að djamma í höfuðborginni... sem er ekki mosó í mínum augum eins og sumir vilja halda fram ... en það er nú alltaf stuð og fjör á djamminu, staðsetnignin skiptir ekki öllu !
Allavega... sleppið ykkur og skemmtið ykkur !! ;)

þriðjudagur, desember 02, 2003

vá sá ótrúlegi atburður átti sér líka stað í dag.... við dóra fórum með kaggann minn í bílaþvott og læti sko... enda veitti víst ekki af, þó að hann hafi nú kannski ekki haldist hreinn lengi miðað við minn rallýakstur... ehemm...
var enda við að koma frá Dóru núna... var að hjálpa henni að fara yfir þessi blöð sem hún er að fara í próf úr á morgun enda ég náttúrlega sérfæðingur í þjóðhagfræði... eða kannksi bara EKKI :D en það lítur nú samt út fyrir að ég hafi náð lokaprófinu í þessu á föstudaginn þar sem kennarinn er ekki búin að hafa samband, eins og hún ætlaði að gera við þá sem náðu ekki... :) ekki slæmt það sko !! tókum okkur reyndar "smá" pásu frá "lærdómnum" og skelltum okkur aðeins út... kíktum meðal annars á Krissa og Haffa niðrí vinnuna til Haffa sem voru á fullu að rústa einhverjum bíl og læti... tókum svo Krissa með okkur enda var Haffi nú að vinna og svo er nú ekkert voða gott andrúmsloftið milli okkar ennþá... en þetta var stuð !

mánudagur, desember 01, 2003

Neee ég er nú ekki alveg dauð sko :D er bara voða takmarkað heima hjá mér þannig að ...
Magnað hvað okkur Dóru tekst alltaf að láta einhverja gaura elta okkur þegar við erum að keyra eitthvað.... svo ef þeir halda að við séum að fara að stinga eitthvað af frá þeim þá bara hækka þeir kröfurnar og vilja endilega hitta okkur.... sem við höfum nú yfirleitt gert... hmm ... enda yfirleitt massa fallegir gaurar á ferð !! heheh ! öflug leið til að kynnast nýju ( og í okkar tilfellum myndarlegu ) fólki ;)
en já... var í prófi númer 2 í dag.... úff... ég og líffræði er nú ekki alveg að meika sig sko... og svo 4 stykki eftir.... en þetta er ekkert mál... bara að ljúka þessu af og svo bara verður að koma í ljós hvernig fer og hvort ég hafi nú fallið í einhverju !

mánudagur, nóvember 24, 2003

okey.... ég er búin að vera að hnerra þvílíkt í allan dag maður... :S og þetta er ekki það sem mig vantar svona akkúrat þegar prófin eru að fara að byrja... verð bara að reyna að ná þessu úr mér núna!!
vá hvað ég hefði ekki valið þennan sem vann herra ísland í fyrsta sætið.... í rauninni hefði topp 10 litið allt öðruvísi út hjá mér heldur en þarna sko... fyndið samt, mér var hugsað til Jóa þegar ég var að horfa á keppnina, þar sem honum var boðið að taka þátt í þessu hefði hann getað verið einn af þeim sem stóðu þarna á sviðinu... mér er nú nokkuð sama um hann núna en það hefði samt verið frekar fyndið að sjá hann þarna !

sunnudagur, nóvember 23, 2003

Djöfull geta strákar verið ömurlegir !! ok, ætla mér alls ekki að fara að dissa alla stráka þar sem ég á fullt af vinum sem eru strákar sem eru bókstaflega æði en svo eru líka til ótrúlega margir strákar sem eru svo miklir .... eitthvað allt annað en æði...!
Anyways... fór á djammið á föstudaginn og var það magnað sko!! það sem við Annika lendum ekki í þegar við erum saman á djamminu sko... það er bara stuðið!!
Fór svo í gær til Völu svölu þar sem gellan var að halda uppá afmælið sitt sem er einmitt í dag, til hamingju í milljónasta skiptið :* já allavega var þar eitthvað fram eftir nóttu og fór svo eftir það að hitta Dóru og Krissa sem var hörku fjör... lentum einmitt meðal annars í smá eltingaleik við annan bíl... hmm... kom svo heim um 6 leytið í morgun og var vakin örfáum tímum eftir það til að fara meðal annars í búðir ... og ekki færi Auður að neita að fara í búðir :D hehe... er samt ótrúlega hress miðað við akkúrat engan svefn um helgina

föstudagur, nóvember 21, 2003

Ég og Dóra ákváðum að skella okkur, ekki bara á okkar dimmisjón, heldur líka á dimmisjónina í FÁ enda var ég þó nokkuð spennt að sjá þeirra atriði þar sem Ómar var búinn að segja að það væri nokkuð magnað... kom okkur nú reyndar ekki á óvart að hann var í aðalhlutverkinu í myndbandinu... ótrúlegur gaur... allavega það var svolíðtið magnað! :D svo brunuðum við aftur uppí MH og voru nokkur sniðug atriði þar... reyndar ekki hægt að bera þessa 2 skóla saman þar sem í FÁ voru allir þeir sem eru að útskrifast eins og saman með atriði... sem mér finnst nokkuð sniðugt... hjá okkur eru margir svona litlir hópar með sín atriði sem er í rauninni allt í lagi en mér finnst hitt reyndar sniðugra...
slepptum svo síðustu tímunum í dag og skelltum okkur á laugarveginn þar sem við keyptum meðal annars svona rauðar thai buxur ;D geðveikt kúl !!
Svo er það bara HÖRKU DJAMM í kvöld maður!! ;P
Sálfræðikennarinn vildi endilega að við færum að tjá tilfinningar okkar meira... semsagt að við færum að segja "ég elska þig" við vini og fjölskyldu og svo náttúrlega líka við kærasta og maka! svaka pæling á bakvið það sko... magnað samt ef ég pæli útí það, að ég hef bara sagt þetta við örfáa útvalda... hef aldrei sagt þetta við neinn í fjölskyldunni minni sem mörgum finnst örugglega frekar skrýtið en mér finnst það í raun bara allt í lagi því ég var bara alin þannig upp.. svo þegar þetta hefur verið sagt við mig, hefur það ekki heldur komið frá neinum í fjölskyldunni... það finnst mér reyndar svolítið skrýtnara sko... en that's my family...

miðvikudagur, nóvember 19, 2003

Var að finna miðann sem var inní svona fortune cookie sem við Karó fengum í afmælinu okkar... í minni stóð : "your love life will be happy and harmonious."
ekki slæmt það ! það er að segja ef maður tekur mark á svona löguðu sko ...

mánudagur, nóvember 17, 2003

Fór með Dóru og Krissa í gær, við ætluðum sko í bíó en ég og Dóra ætluðum að fara í myndatöku og svo bara gleymdum við gjörsamlega tímanum !! við eyddum allavega SLATTA pening í myndatökur sko... :$ fórum í nokkrar passamyndir, svo í nokkrar svona þar sem er tekin mynd og teiknuð eftir því , og svo fórum við líka í tvær svona límmiðamyndatökur!! þetta var hellings stuð sko... aldrei að vita hvort myndirnar verði einhvern tímann hér til sýnis... en allavega ekki í bili þar sem ég kann engan veginn að setja svona inn...
svo eftir þetta fórum við bara og leigðum spólu í staðinn fyrir bíóferðina og skelltum okkur svo á smá rúnt... tjill kvöld semsagt!