þriðjudagur, febrúar 24, 2004

Búin að skoða dagskrána fyrir lagningardagana sem líta alveg þokkalega út, allavega fleiri verkleg námskeið núna í ár heldur en síðast... box fyrirlesturinn með Bubba sem ég og Karó skelltum okkur á í fyrra var samt mjög skemmtilegur þrátt fyrir að hafa verið næstum einu stelpurnar þarna... ! ;) við Dóra ætlum að klára bara punktana á morgun og fá þar af leiðandi langa helgi :D heví næs ! aldrei að vita nema maður mætir samt sem áður á fimmtudaginn á Johnny Depp dæmið eða eitthvað annað ... ;) pæling sko !
Íslenskukennarinn minn tók uppá því að boða forfall í dag... sem þýddi að ég átti ekki að mæta í tíma fyrr en 11... og ég sem var mætt uppí skóla kl. 8 takk fyrir ! en það var nú ekki svo hræðilegt samt, fann mér ýmislegt að gera enda í góðum félagskap.. ;) tíminn ekki beint nýttur í lærdóm... hehe !
Jæja... ætla að drífa mig út núna... ;P
*CIAO*

mánudagur, febrúar 23, 2004

Gaurinn sem tók she bangs lagið í fyrstu þáttunum í american idol er barasta heldur betur að slá í gegn þrátt fyrir að hafa ekki komist áfram ! það finnst mér ekkert smá fyndið, enda er gaurinn snilld út í eitt sko !! :D ég lá í hláturskasti þegar hann tók lagið og á hann nú þátt í að hafa lengt lífið mitt aðeins, þar sem hláturinn lengir nú lífið ;) ætti ábyggilega að ná 100 ára aldrinum ef það er satt...
Það var nemendatími í jóga í dag þar sem við áttum að kenna og átti ég að sjá um upphitun og gekk það svo sem alveg ágætlega, er bara fegin að hafa ekki lent í að gera æfingarnar... sem Dóra lenti í en henni tókst það svona líka þrusuvel, er henni greinilega meðfætt :) þurfum svo að fara í auka tíma utan skóla, svona professional... í stúdíói og læti til að láta okkur kynnast fleiri æfingum eða eitthvað álíka !
Tvö próf á morgun hjá mér, kvikmyndaenska og stærðfræði og verð ég fegin eftir tvöfalda tímann á morgun en þá er ég svona hálfpartinn komin í helgarfrí.... nice !!! :P

sunnudagur, febrúar 22, 2004

þá erum við dóra á leiðinni á sugababes tónleikanna og ekki aftur snúið með það ! enda verður þetta geggjað ! :) Láki ætlaði að koma með okkur en svo komst hann ekki til að kaupa miða og ég var ekki með kortið mitt þannig að ég gat ekki keypt fyrir hann.... þannig að hann missir af þeim, nema hann reddi sér einhvern veginn miða... honum vantar allavega ekki samböndin ! :D svo erum við líka að pælí að skella okkur á incubus í sumar... og ákváðum líka, í öllum þessum vangaveltum okkar, að skella okkur eitthvert út ! margt ákveðið í einu.... en þetta verður stuð ! :P
svo keypti ég mér rosalega flottan kjól áðan og hugsa að ég fari í honum á fimmtudaginn, þó svo að ég hafi ekki ætlað í kjól... en þá hef ég allavega ástæðu til að nota hann !! ;P ætla þá í nýju skónum mínum við... svaka primadonna !! ;) hehe !

miðvikudagur, febrúar 18, 2004

hver var að kaupa sér nýja skó ?? það skyldi þó ekki vera hún Auður ?? :O en ég meina... stelpur eiga aldrei of mikið af skóm sko !!! ;P
lagningardagarnir eftir viku og verður það LJÚFT !! um að gera að klára bara punktana á miðvikudeginum og fá þá fjögurra daga helgarfrí... sweet !! :) svo er förinni heitið á Apotekið á fimmtudeginum og ekki er það nú slæmt, reyndar bara rosa flott !
léttur skóladagur í dag thank god !! horfðum á the shawshank redemption í dag í ensku og þessi mynd er bara ferlega góð ! horfum við svo næst á casablanca og verður það ábyggilega áhugavert þar sem hún er svona rosalega umtöluð .... alltaf stuð í skólanum skal ég segja ykkur ... !
er á fullu að leita mér að vinnu í sumar og gengur það ekkert alltof vel, þar sem ég get eiginlega bara unnið frá því í byrjun júní til lok júli... og ef ég fer í sumarskólann verður ennþá flóknara að finna vinnu sem hentar, uppá tímann semsagt... hálfgert vesen á mér.... en þetta hlýtur að reddast ! hef enga trú á öðru ;)

þriðjudagur, febrúar 17, 2004

sunnudagur, febrúar 15, 2004

hmmm... ég er nú ekki alveg að standa mig í þessu bloggi núna... *roðn*
Það er nú alveg ótrúlegt hvað ein manneskja hefur mikið að gera, mættu alveg vera aðeins fleiri tímar í sólarhringnum... bið nú ekki um mikið meira... :D er að standa mig alveg óhugnalega vel í öllu núna eitthvað, er hreint alltaf svo full af orku sjáið til ;) en það er nú bara ágætt, enda þýðir ekkert annað !
var barasta að koma úr Grindavíkinni, þurfti að keyra pabba í bátinn og það gékk nú bara vel eins og vanalega ! maður er enga stund að keyra þetta... sérstaklega þegar ég er undir stýri :D hehehe ! nei nei segi nú bara svona... ;P svo ætluðum við mútta að fara að versla og gengum við framhjá svona myndakassa og viti menn... haldiði ekki bara að við höfum skellt okkur í svoleiðis ! sem mér finnst alveg helvíti magnað... ég meina, ég á HELLING af svona myndum af mér og vinum mínu en að eiga svona af okkur tveimur ... það er svolítið fyndið :D frekar spes !! ;)
Árshátíðin verður með öllum líkindum á Selfossi núna þetta árið.... kannski að það verði bara á Fáskrúðsfirði á næsta ári.... hvað veit maður :D en núna er sko pælingin hjá the people á borðinu hvort það væri ekki skemmtilegra að fara bara út að borða hérna í bænum og svo bara BRJÁLAÐ djamm eftirá... halda okkur semsagt bara hérna í menningunni.... ég er alveg opin fyrir öllu sko, eins og oftast ;)
þetta er pælingin sko...

þriðjudagur, febrúar 03, 2004

Er á fullu að gera eitthvað verkefni í íslenskutímanum, eins og sést !! ;) hehe ! dugnaður í fyrirrúmi sko :D annars er ég eiginlega bara hissa á sjálfri mér hvað ég hef staðið mig þokkalega í náminu það sem búið er af önninni... :) gæti kannksi haft eitthvað með það að gera að ég ætla mér að útskrifast um jólin, hvað sem það tekur ! ætla sko engan vegin að fara í þessu blessuðu samræmdu próf takk fyrir !! en þetta tekst nú vonandi allt ef ég næ öllu núna sem ég stefni að ;)
Stúdentaferðinni er núna heitið til Spánar skilst mér... annars er planið alltaf að breytast... ég er allavega til í flest allt svo lengi sem ég kemst til Eyja um versló, í brúðkaupið til Fjólu og Davið og get unnið megnið af sumrinu ! :) engar smá kröfur þetta hjá mér :D
hey vá tíminn búinn..
see ya

sunnudagur, febrúar 01, 2004

Þá er janúar búinn og tíminn flýgur sem aldrei fyrr !! styttist semsagt óðum í sumarið og sólina vonandi :P það var einmitt engin smávegis sól þegar ég og Dóra vorum að keyra frá laugarvatni áðan, vona að það verði nóg af svona sól í sumar !! það væri sko æði ! ;)
Fyndið, sá myndbandið við fuck it lagið í fyrsta sinn áðan og það var svo ALLT öðruvísi en ég átti von á... maður ætti kannksi bara að fara að semja lag til að tjá sig ef það er haldið framhjá manni, algeran slagara eins og þetta lag og vera nokkrar vikur á topp 10 listanum og græða helling og kafna í aðdáendum... þá kannksi sér manneskjan eftir þvi að hafa haldið framhjá manni... pæling.... mjög djúp pæling !! :D hehe ! allavega....
hey já svo er hörkudjamm á föstudaginn !!!!! þessi helgi varla liðin og strax farin að hlakka til næstu... !! ;) þetta er stuð og fjör !! ;)
anyways... see ya babes ;P

mánudagur, janúar 26, 2004

You are soooo LOVABLE!
Waaah! You're so LOVABLE! Everybody likes you,
because you're a great person to have around
and it's always happy about everything

fyndið :D


You represent... happiness.
You represent... happiness.
Boy, are you full of cheer or what...? You have a
sunny disposition and enjoy trying to spread
your happiness. You have a tendency to be a
little hyper, but you have the ability to make
your own fun no matter what.


What feeling do you represent?
brought to you by Quizilla

jæja já... nenni ekki að taka fleiri svona próf... allavega ekki núna, enda orðið fínt í bili !! ;) en já ég hef verið nokkuð löt við að skrifa undanfarið en það er nú mest vegna annríkis...
núna er akkúrat mánuður í árshátíðina og verður þá heldur betur flottheit á fólki !! förum líklega öll á borðinu út að borða fyrir hana eins og undanfarin ár og það er bara stuð !! :)
þetta var nú ekki langt blogg hjá mér núna en ég nenni ekki að skrifa meir í bili... verð víst að fara að kíkja aðeins í bók fyrir þessi tvö próf hjá mér á morgun... :S
skemmitð ykkur bara !! ;P

fimmtudagur, janúar 08, 2004

Þá er skólinn byrjaður aftur á fullu eftir slatta gott jólafrí ! :) hef reyndar aldrei haft svona margar einingar þannig að nú er bara að standa sig sko ;) enda er það nú planið !!
nóg að gera hjá mér semsagt og svo er maður að púla í Hress reglulega og svo er partý hjá Hjalla uppí borgarnesi á föstudaginn og svo ætlar hún Rúna Vala að halda uppá 20 ára afmælið sitt á laugardaginn og auðvitað lætur maður hvorugt fram hjá sér fara sko !! ;)
nema þá ég missi kannksi röddina sem ég er á góðri leið með núna... :S myndi nú samt ábyggilega fara :D
en já hálsinn er alveg að fara með mig og lét ég skynsemina ráða ferðinni í morgun og fór ég í þykku dúnúlpunni minni svona aðeins til tilbreytingar í skólann en svo þegar ég kom út var nú ekkert svo kalt sko... þannig að ég var eins og einhver eskimói :D en það er nú bara gaman af því sko ! jæja.... þá er gatið mitt víst að verða búið og best að koma sér... ciao babes ;)