sunnudagur, mars 27, 2005

-ji hvað ég er fegin að páskarnir séu bara einu sinni á ári eins og jólin... ekkert nema leti í manni og svo bara hellings páskaeggjaát og alltaf einhver matarboð og ekki nóg með það, heldur er þetta einmitt líka tími fermingaveisla þannig að þetta er einum of fyrir minn smekk! :D allavega... ég verð ekkert miður mín þegar þeir eru liðnir hjá :D jújú auðvitað er nú líka alveg gott að vera í fríi sko... sofa lengur og engar áhyggjur að koma seint í vinnu og svona... ;)

-villi er farinn af landi brott... fór í dag og er eflaust kominn til danaveldis í þessum skrifuðum orðum... núna er samt styttra þangað til maður hittir hann næst en það var mjög gaman að hafa hann hérna hjá okkur eins og alltaf bara... :D

-kíkti aðeins í bæinn á föstudaginn og það var aldeilis fínt! svona að mestu leiti allavega, en maður verður bara að reyna að gera gott úr öllu ekki satt?? :) en já það var allavega PLENTY af fólki downtown og greinilega margir sem eru að njóta þess að vera í fríi... enda ekkert nema gott með það ;)

-gleðilega páska já... það er víst páskadagur, ekki má nú gleyma því :D ekkert smá fallegur dagur... klikkað hlýtt og notalegt veður... við ottó byrjuðum daginn bara snemma sko, kíktum út úr húsi um 10 enda dásamlegt veður og haldiði ekki bara að kallinn hafi farið með mig að kenna mér golf! :D það var sko stuð! þannig að nú fer ég bara að mana ykkur hin í golf ... þetta er nefnilega heví gaman! en ég myndi náttúrlega mala ykkur enda með besta leiðbeinandann! :P heheheh!

"Hóf er á öllu nema hvílukossum einum" er málshátturinn sem ég fékk í Nóaegginu.... hafið þetta í huga krúttin mín! ;)

njótið fríisins!!!!

fimmtudagur, mars 24, 2005

-það er alveg ótrúlega nice að vera bara svona í fríi! :D ekkert smá notalegt... við gátum sofið smávegis út í morgun en ottó þarf að læra svo mikið að fríinu að það verður ekkert sofið langt frameftir degi... enda er það mjög fínt því þá fer maður ekkert að snúa sólarhringnum neitt alvarlega við í fríinu :)

-síðasta helgi var alveg stórfín, villi bró kom heim á föstudeginum og á laugardeginum skelltum við ottó okkur út að borða á galileo... það var alveg rosalega fínt eins og restin af kvöldinu :) á sunnudeginum var bara í fermingum út í eitt... byrjaði um 2 og kom heim um hálf 10 um kvöldið.... frekar langur dagur en alveg ágætur þrátt fyrir það ;)

-svo er villi bara strax búinn að næla sér í flensu og tókst að smita mömmu líka.. er það nú, að koma hingað til landsins og það fyrsta sem hann gerir er að leggjast í flensu! stuð og fjör maður! :D hheheh! við láki babe erum að pæla í að draga hann með okkur út á lífið um helgina þannig að bara eins gott að hann nái þessu úr sér sem fyrst!

-hitti guggu aðeins í kringlunni áðan og var það heví nice að hitta hana svona smá þó að það var nú ekki í langann tíma! en það er svo langt síðan að maður hefur hitt fólkið úr gamla MH hópnum að ég er bara alls ekkert viss um að ég myndi þekkja alla aftur! neee segi það nú kannksi ekki alveg en það er alveg kominn tími á hitting... er sammála því!
talandi um.... þá er kominn nýr linkur... :)

-annars er bara mest lítið að frétta, allavega af mér... önnur saga með annað fólk...

en ég er farin að gera eitthvað undurdásamlega skemmtilegt... hvað sem það nú er :D
ciao elskurnar mínar!

fimmtudagur, mars 17, 2005

vikan er vægast sagt búin að fljúga áfram... brjálað að gera í vinnunni og allt eitthvað öfugsnúið fyrir utan vinnuna... samt mikið búið að róast núna þegar nær dregur að helginni sem betur fer segi ég nú bara... svo er ég að deyja úr kuldahrolli núna og er bókstaflega að krókna þó ég sé í tveimur peysum og undir flísteppi! :D en já þannig að ég tók þá gáfulegu ákvörðun að sleppa dansinum núna í kvöld... frekar fúlt að missa af tíma enda finnst mér þetta svo skemmtilegt, en það verður bara að hafa það... við skafti vorum einmitt að tala um að hann ætti bara að fara og taka með sér kústskaft og dansa við það til að viðhalda danskunnáttunni! :D

annars er edda systir að fara til new york og verður þar í þrjár vikur... fer í júní og kemur aftur í júlí...! hefði ekkert á móti því að vera í hennar sporum en ég er jafnvel að pæla í að skella mér eitthvað út áður en skólinn byrjar þannig að þetta reddast nú ábyggilega allt ;)

annars er næsta mál á dagskrá... hvað mun verða fyrir valinu í haust... hugsa að ég fari í skóla en eins og áður þá er íþróttakennarinn enn á hold en núna er eftirfarandi það sem kemur til greina...
- sálfræði, 3 ár + 2 eða þrjú viðbótar ár til að útskrifast sem sálfræðingur... myndi þá ábyggilega fara eitthvert út að klára námið eftir þessi fyrstu 3 ár
-uppeldis og menntunarfræði, kemur ágætlega vel til greina, 3 ár í B.S.
-félagsráðgjöf, er frekar heit fyrir þessu líka... 3 ár og myndi útskrifast sem félagsráðgjafi
-viðskiptafræðin er dottin niður um nokkur sæti
-svo er kennó enn inni í myndinni en ekki eins ofarlega og áður...
en þetta er svo breytilegt núna í augnablikinu... ætla að skoða fleira og kynna mér betur málin áður en ég ákveð mig alveg... :)

laugardagur, mars 12, 2005

best að hripa eitthvað hérna niður... ég fór semsagt í strípur á laugardaginn og kom út miklu ljósari en áætlað var... hún vildi endilega lýsa það sem mest enda væri ég þessi fullkomna "ljósa týpa" :D hahha! einmitt! en já svo var partí hjá skafta kallinum sem var að halda uppá afmælið sitt og var keypt páskaegg fyrir kallinn! :D hann var alveg VEL sáttur við það! en svo skelltum við gellurnar okkur á ballið þarna seinna um kvöldið og var það nú bara mjög fínt...

annars held ég að það hafi nú afskaplega lítið gerst sem vert er að nefna í vikunni, eða jú auðvitað var árshátiðin hjá L.R. og var hún bara rosalega fín! einhvern veginn sá ég ekki alveg fyrir mér hvernig þetta myndi koma til með líta út þarna í egilshöllinni en þeir hafa náð að redda þessu alveg sæmilega bara! hef nú alveg fengið skárri mat en matseðillinn breyttist eftir að árshátíðin sjálf var flutt... leist miklu betur á fyrri matseðilinn! :) en þetta var ágætt... edda systir orðin VEEEEL skrautleg þegar hún mætti og haldið ekki bara að hennar leikskóli var á næsta borði við okkar... við vorum sko alveg við sviðið en mamma og pabbi hans ottós og systir hans fengu sæti frekar langt frá okkur, eiginlega alveg aftast... en það geta vist ekki allir fengið góð sæti... :)

en já verð að koma aðeins inná þetta verðstríð hjá lágvörubúðum... þetta er ekkert annað en hlægilegt! maður fer að versla og kemur út með 3 sneisafulla poka á 1500 kall! krasíness eða hvað... ekkert smá hentugt fyrir stórfjölskyldur og líka fyrir fólk sem er að halda veislur og svona núna, það græðir SLATTA! eins og við hin reyndar líka! ;) nú er sko gaman að fara að versla :D heheh!

talandi um veislur, þá eru 3 fermingarveislur á næstunni hjá mér... reyndar allar næstu helgi takk fyrir! ein á laugardeginum og tvær á sunnudeginum... nóg að gera hjá mér semsagt þá...

svo er villi bróðir að koma til landsins á föstudaginn og er frekar skondið að fá að hitta hann aftur strax, kom hérna um jólin og kemur vanalega bara um jól og þar með er yfirleitt ár á milli þess að maður sér hann en núna eru bara 3 mánuður síðan... það er bara stuð! :)

föstudagur, mars 04, 2005

jæja þá er það komið á hreint... árshátíðin okkar verður flutt yfir í Egilshöll þannig að allur elegance er horfinn á braut! það hljómar alltaf eitthvað svo fágað að segjast vera að fara á árshátíð á broadway... :D kannski bara snobby me! en já málið var allavega það að aðsóknin á þessa árshátíð var svo mikil að um 700 starfsmenn L.R. fengu ekki miða og sköpuðust náttúrlega heilmikil læti kringum það... en það er semsagt búið að redda málunum með því að færa hana, en auðvitað átti bara að taka egilshöll strax en ekki broadway enda gríðarlegur fjöldi sem hér er verið að tala um! klikkað fúlt samt, því okkar leikskólastjóri beið í eitthvað um 4 tíma í röð til að fá sem best sæti á broadway og núna skiptir sú sætaskipan auðvitað engu máli! :D en c'est la vie... allavega gott að allir komast og allir séu kátir!

svo eru það strípur á fyrramálið og ég hugsa svei mér þá að ég láti klippa hárið mitt líka... langar að breyta eitthvað gífurlega til en samt tími ég því einhvern veginn ekki því ég er búin að vera að safna svo lengi og fýla betur að hafa sítt hár... reyndar mjöööög langt síðan ég var stutt hár þannig að ég get kannksi ekkert verið að tjá mig réttlætinlega um það :D hvað ég geri kemur allavega í ljós á morgun...

eins og ég var búin að minnast á áður er svo partí hjá skafta annað kvöld, kallinn eitthvað að halda upp á öll árin sín með dúndurpartí! en já talandi um skafta þá erum við náttúrlega á fullu í dansinum og verð ég að segja að þetta er alveg óóótrúlega skemmtilegt! við náttúrlega með öll sporin á kristaltæru (hmmm... eða ekki! :D) og erum jafnvel að hugsa um að taka nokkur move á morgun! heheh! nei svo án djóks þá eru þessir tímar alveg frábærir og þó þetta sé kannksi ekkert endilega 100% hjá manni, þá er þetta bara svo skemmtilegt að maður er ekkert að pæla það mikið í því enda fyrir mestu að hafa gaman að! :)

svo er víst líka eitthvað verið að tala um ball á gauknum... í svörtum fötum að spila... gæti nú verið gaman að kíkja og endurupplifa "gauksstemmninguna" enda vorum við annika, karó og dóra mjöööög tíðir gestir þar í den! :D

svo er jú líka þessi háskólakynning í borgarleikhúsinu á morgun og gæti alveg verið vit í að kíkja aðeins á hana og kynna sér hvað er í boði þar... ottó væntanlega að deyja úr þynnku þannig að það er einmitt tilvalið að draga hann með mér á þetta... hann þarf ekkert að gera annað en að labba um og kinka kolli á meðan ég reyni að finna eitthvað nám sem gæti hentað mér... súúúper stuð hjá honum ;)

svo er eitt sem ég ekki fatta... ég er búin að fara í óeðlilega marga ljósatíma núna síðasta mánuðinn en það er eiginlega alveg sama hvað ég fer í marga tíma þá er alltaf eitt svæði sem er alltaf jafn hvítt... ég næ smá lit í andlitið og á maga og niður, en svo hendurnar og bringan eru bara eitthvað ónæm fyrir þessum geislum virðist vera... til dæmis er ég miklu brúnni á fótunum en á handleggjunum... allveg magnað! kannksi bara lélegar perur or some!

fimmtudagur, mars 03, 2005

Nú styttist óðum í helgina og er nóg að gera laugardagskvöldið, partí hjá skafta og svo náttúrlega ball með í svörtum fötum sem er verið að pæla að skella sér á ;) þetta verður kærkomið djamm! annað kvöld er óplanað en ég finn mér án efa eitthvað sniðugt að gera, bjalla bara í liðið og tékka á stemmningunni :) er nú ekki vön að láta mér leiðast. Hey já svo átti skafti afmæli um daginn, orðinn eeeeeldgamall og óska ég honum hér með til hamingju, congrats sykurpúði! :) árshátiðin mín er svo eftir viku og tek ég mér fundarfrí þann daginn þannig að ég er búin í vinnunni um 2 í staðinnn fyrir 5... aaaafar ljúft :) svo eru það strípur og læti núna á laugardaginn... finally!
meira seinna.... ciao

laugardagur, febrúar 26, 2005

já það ótrúlega hefur svo sannarlega gerst fyrir hana auði hérna! hún fékk æluna nokkrum sinnum í nótt takk fyrir! hef ekki fengið gubbupest síðan 19??... ef ég man rétt... en já er samt alveg sæmilega hress núna, smá flökurleiki og svona eins og í gær bara en þó engir beinverkir eins og voru að plaga mig í gær...

þrátt fyrir smá slappara þá skellti ég mér samt á idolið í smáralind enda sleppur maður því ekki ef manni er boðið á annað borð ;) þar var bara ferlega gaman, miklu skemmtilegra að horfa á þetta þarna en að sjá þetta í sjónvarpi! ætluðum að fá okkur að borða á pizza hut fyrir keppnina en þá var búið að taka allan staðinn í einhvern tíma þannig að fridays' varð bara fyrir valinu... ég er eiginlega alveg hætt að fíla þann stað, fannst hann einu sinni mjög fínn en hefur fallið mjög í einkunn hjá mér eitthvað... við mættum allavega um sex leytið og þá var strax komnar nokkrar 10-12 ára stelpur að bíða í röð eftir idolinu... sumar hafa greinilega EKKERT annað að gera :D hehehe! en þetta var mjög fínt allavega!

svo styttist óðum í árshátiðina hjá mér og stefni ég á MEEEGA tjútt bara! fattaði reyndar að það er frekar stutt í hana og ég ætlaði að skella mér í strípur og jafnvel klippingu fyrir hana, en stofan sem ég fer alltaf á lokar um sex og ég er náttúrlega alltaf að vinna til korter í fimm þannig að það væri ekki fræðilegur möguleiki að ná því... þannig að ég þarf nauðsynlega að komast að næsta laugardag því annars næ ég því ekki! það væri svo sem ekkert end of the world eða neitt svoleiðis ef ég kæmist ekki en alltaf gaman að fara sem fínust á árshátið ;)

er búin að fá að vita hvenar leikskólinn minn lokar og mun það vera akúrat yfir verslunarmannahelgina! lucky me! ;) hann lokar semsagt 18. júlí og opnar aftur 2. ágúst... ég sem ætlaði að biðja um frí á föstudeginum þarna fyrir versló til að komast fyrr til eyja... hehehe.... slepp allavega við það :) annars er bara rosalega góð stemning fyrir þjóðhátíð þetta árið heyrist mér... lítur út fyrir að það verði bara fjölmennt í eyjum sem er MJÖÖÖÖG gott ;) the more the merrier!

á morgun er planið að skella sér á háskólakynninguna með völu og kynna sér betur hvað kemur til greina fyrir mann í haust... er eiginlega alveg hætt við íþróttakennarann, allavega í bili... það átti reyndar að opna nýjan skóla á suðurnesjum ef ég man rétt en hef ekkert heyrt meira um það þannig að það er bara að bíða og sjá... allavega er svo margt annað sem mig langar að læra þannig að vandamálið hjá mér er að velja úr því! vona að maður fái aðeins nánari upplýsingar um hitt og þetta á morgun! :)

anyways.... ég kveð að sinni... over & out! ;)

miðvikudagur, febrúar 09, 2005

Jájá, sko aldeilis margt búið að gerast síðan síðast... búin að klessa bíl, já eða höfum það rétt, tvo, náði að snúa á mér ökklann, búin að fá að vita með árshátíðina hjá leikskólum Reykjavíkur( sem verður KKKKRAZZZÍÍ), búin að fara í fleiri danstíma og já svo margt annað sem hefur á daga mína drifið undanfarið... Langar samt ótrúlega að fara aðeins nánar út í þriðja liðinn.... ;) árshátíð leikskóla reykjavíkur verður semsagt 11. mars og Örn Árnason verður veislustjóri og getið bara hver mun halda uppi fjörinu?!?!?! haldið ykkur faaaaast, því það mun vera Sálin! hvorki meira né minna! hhehe! auðvitað fer ég, ekki spurning, fáum meiri að segja frítt á hana takk fyrir!
Annars kíkti ég á djammið núna síðustu helgi og vá hvað ég hafði saknað þess að fara svona út með stelpunum, náttúrlega mikil tilbreyting að hittast svona sjaldan eftir að hafa hists á hverjum degi í 4 og hálft ár... en maður verður að reyna að gera það besta úr þessu :) allir farnir að vinna á sínum stað og það segir sér sjálft að sambandið myndi minnka... en það er þá bara ennþá meira fjör þegar við finially meet ;) alltaf að líta björtu hliðarnar... þar sem það er hægt allavega...
vúpsí, must go now... skrifa meira við tækifæri... :) ciao

sunnudagur, janúar 23, 2005

Sunnudagspistill Auðar ætti þetta blogg að heita... :Þ
Dansinn gengur rosalega vel og eru þetta ekkert smá skemmtilegir tímar og erum við Skafti ekki lengi að ná sporunum... :D
Vinnan gengur líka rosalega vel... reyndar búið að vera fáranlega mikið um veikindi en ég er eini starfsamaðurinn á okkar deild sem hef ekki orðið lasin... á mánudaginn mættu heil 4 börn af 20 en á föstudaginn var talan komin upp í 8... þannig að vikan er búin að vera mjög róleg :) svo var þorrablót og læti á föstudaginn en krakkarnir voru samt mishrifin af því en það er bara eins og gengur og gerist... :D
Kíkti aðeins í bæinn á föstudaginn en eins ótrúlega og það má virðast var ég heima í gær! á laugardagskvöldi nota bene! var eitthvað ekki alveg með sjálfri mér.. en það kemur víst líka fyrir að meiri að segja Auður sé ekki alveg sem hressust... i'm only human, you know...! en maður lítur þá bara á björtum hliðarnar í lífinu sem eru sem betur fer MUN fleiri en þær dökku :)
Idolið já... hef ekkert skrifað um það, þannig að það er kannksi pæling að tala smá um það... allavega held ég að þetta verði rosalega jöfn keppni... finnst allavega margar mjööög góðar... sjálf "held ég með" Heiðu... reyndar eru Lísa og Hildur Vala líka mjög góðar og spái ég þeim í topp 3... en eins og ég segi þá spái ég jafnri keppni núna :) var alveg sáttt við úrslit síðasta þáttar, reyndar ekki alveg með að þessi í gula kjólnum lenti þarna á botninum því mér fannst hún nú alls ekkert slæm en svona er þetta misjafnt....
Svo er handboltinn að byrja á fullu og mun maður fylgjast spenntur með mótinu enda er annað bara bull! ;) hehhehe... er einmitt að horfa/hlusta á leikinn núna með öðru auganu enda er ég svo svakalega fjölhæf sjáið til :)
Svo má viðkomandi sem skrifaði síðast á tagboardið, endilega skrifa aftur það sama en bara sleppa íslensku stöfunum... langar að sjá almennilega hvað stendur... þarna kemur einmitt forvitnin fram sem ég minntist á um daginn... :)

sunnudagur, janúar 16, 2005

Þá er enn önnur helgin að baki og ný vinnuvika framundan! Flensan er kannski það sem hefur verið fyrirferðarmest í vikunni og er ástandið á leikskólanum alveg svakalegt sko! Börnin nánast öll fjarverandi og ekki er starfsfólkið í betra ástandi og hef ég þurft að skila og loka alla vikuna sem er nú samt alveg í góðu... en ég hef sem betur fer sloppið við þessa flensu enn sem komið er, enda ekki þekkt fyrir að vera mikið veik :) 7-9-13!!
Heyrðu já svo byrjuðum við Skafti í dansinum á fimmtudaginn og vá! þetta var sko skemmtilegt! bara einn tími búinn en við strax orðin dansióð enda greinilega meðfæddir danshæfileikar sem við búum að!! ;) heheh! en já semsagt 1 down - 13 to go! Skafta tókst samt að snúa eitthvað smá upp á ökklan í gær en vonandi ekkert alvarlegt þar á ferð :)
Í gær var litið í bæinn eða já allavega endað þar... Við Annika og Dóra kíktum út á Álftanes að hitta strákagengið og vorum við þar í dágóðann tíma... og haldiði ekki svo bara að leiðin hafi legið á fjörukránna í Hafnarfirði!! kostaði 800 kr inn og sénsinn á að við stelpurnar hefðum borgað okkur þar inn eru akkúrat ENGAR!! en Egill splæsti hvorki meira né minna á okkur þannig að ekki var aftur snúið þaðan! við vöktum enga smá athygli þarna inni, enda kannksi alveg skiljanlegt miðað við að meðalaldurinn aldurinn þarna inni hefur verið svona 63 ára eða þar um bil... :S en eftir stutta viðveru þar fórum við loksins í bæinn... þar sem okkar staðir eru!!! :D heheh! engin fjörukrá neitt takk fyrir! var nú frekar stutt samt í miðbænum og um 3 hálf 4 lá leiðin heim á við og var það bara fínt, því næstum um leið og ég settist í bílinn hjá Ottó byrjaði þessi líka svaðalega rigning!! en ég slapp... hí á ykkur hin ;P heheh!
sjáumst englabossarnir mínir!!