miðvikudagur, maí 21, 2003

jæja já... svona er þetta víst !
Úff... það er komið að því... er að fara að sækja einkunnirnar... :S

miðvikudagur, maí 14, 2003

Fórum á How to lose a guy in 10 days og mér finnst sú mynd bara afskaplega sæt eikkað :) Hittum Anniku í bíóinu og það var náttla svaka stuð þannig að við skelltum okkur á rúntinn eftir myndina sem er alltaf gaman :D
svo í gær fór ég í viðtal hjá Húsdýra og fjölskyldugarðinum og konan sagði að sér litist mjög vel á mig og hefði ekkert út á mig að setja ( sagði þetta öruglega við alla :D) en svo hringdi hún í dag og sagði að þetta hefði verið erfitt val og ég fengi því miður ekki vinnuna :S þannig að ég verð bara að halda áfram að leita !! þýðir ekkert annað...
Getið bara hver fer bráðum að rúnta um á SILFURLITUÐUM GOLF MEÐ SPOILER!!!! :P heheh jújú mikið rétt !! pabbi var að skoða bíla og leist svo hel**** vel á hann að hann keypti hann !! bíl drauma minna sko... en núna er mamma farin að keyra aftur þannig að ég fæ nú örugglega ekki að vera mikið með hann en SAMT!!! ;D er ekkert smá ánægð !! :D
Svo er Edda systir back in town!! gleðifréttir það en ég skulda henni víst afmælisgjöf :$ þarf að fara að redda því :D hehe ...
ciao babes :*

laugardagur, maí 10, 2003

Búin að kjósa og alles!! Fórum í Árbæjarskóla til að kjósa og þvílík breyting á skólanum á þremur árum!! það er ekkert smá sko!!ég varð alveg ótrúlega hissa þegar ég labbaði innum dyrnar en svona breytist þetta víst með árunum....
Á fimmtudaginn eða fimmtudagskvöldið fórum við aðalgellurnar á rúntinn, aðalgellurnar eru náttúrlega Dóra, Karó , Annika , og ég ;D og með okkur gellunum var náttúrlega aðalgæjinn sko, sem er semsagt Dabbi Vals fyrir þá sem ekki vita það!! Það var alveg ótrúlega skemmtilegt á þessum rúnt, einn af skemmtilegustu rúntunum sem ég man eftir :D svo í gær komust við Dóra að því að við værum með BLÁTT hjarta takk fyrir!!! var nú ekki alveg nógu sátt við það enda er rauður uppáhaldsliturinn minn fyrir þá sem ekki vita það ... :D hehe... en anyways.... svo er bara kosningarvaka í kvöld..... en ætla að skella mér í bíó fyrst með Dóru !! það er svo langt síðan ég hef farið í bíó mar, það er ekki fyndið... eða nei kannski ekki alveg svo langt... fór reyndar síðast á just married og hún er ekki svo gömul þannig að... :D heheh
en allavega... see ya babes :*

fimmtudagur, maí 08, 2003

VÚHÚ!!!!!!!!!! ég er loksins búin í prófunum!! :) fór reyndar bara í 3 próf en samt.... íslensku prófið í dag var það síðasta og einmitt þegar ég er búin að lesa ótrúlega mikið og held að þetta muni nú allt reddast þá bara rugla ég saman nöfnunum og fleiru í prófinu og allt fór í klessu... :S en ég er allavega búin núna og ég er alveg undirbúin fyrir að falla í einhverju :D
Vá nú tekur bara við alger afslöppun!! get náttúrega ekki farið að vinna þar sem ég er ekki komin með vinnu... get ekki farið að læra þar sem ég er búin í prófunum.... vá komin í sumarfrí... pælið í því :D hehe :P
En já svona til að skipta um umræðuefni þá er fyndið hvað lífið getur breyst á einni sekúndu... Vinkona mín á barasta von á litlu kríli!!! :) hún tilkynnti mér það að ég væri bara að verða Auður "Frænka"!!! hún er nota bene jafn gömul mér og þá fór ég að hugsa hvað allt myndi breytast gífurlega ef ég yrði ófrísk.... það myndi bókstaflega allt breytast hjá manni!! en ég bíð spennt eftir desember mánuði :) :) og óska ég henni hérmeð aftur til hamingju með það :)

mánudagur, maí 05, 2003

Svo má náttúrlega ekki gleyma að bestasta, yndislegasta, skemmtilegasta systir EVER á 25 ára afmæli í dag!!! óska ég henni innilega til hamingju með það :*

sunnudagur, maí 04, 2003

Þetta er einn af mörgum sem fóru í svona inntökupróf fyrir american idol.... en þetta var ekki alveg að ganga hjá greyi drengnum...
Síðasta spurningin á söguprófinu var eitthvað í þessa áttina.. : Það sem ég veit en þið hafið ekki spurt um.... og þessi spurning gildir heilt stig!! :D hvað dettur ykkur í hug að hann hafi verið að tala um??
Fyrir þá sem ekki vita þá virka ekki linkarnir mínir... er víst ekki enn búin að finna út hvernig maður lagar þá... :S

fimmtudagur, maí 01, 2003

Sögu próf á morgun... ekki líst mér nú á það... :S annars skellti ég mér smá á rúntinn í nótt með Brynhildi og Jón Oddi og það var hörku stuð eins og alltaf :D svo fór ég að lesa þegar ég vaknaði í dag og finnst ég vera búin að lesa heilan helling en samt ekki búin að læra neitt. :S er það hægt?? bara spyr... ;)
svo eftir 10 daga kemur Edda að norðan og flytur aftur heim til okkar :) fatta ekki hvað stúlkukindin var að pæla in the first place að flytja FRÁ okkur.... :D en það verður gegt gaman :)
Allir að hugsa vel til mín í fyrramálið í prófinu.... þeir sem verða vaknaðir það er að segja ... ;D