föstudagur, nóvember 07, 2003

God hvað ég er ekki að nenna að gera þetta verkefni sem við eigum víst að vera að gera núna, þannig að ég er bara að gera eitthvað ALLT annað... :D
Ég var bara nokkuð sátt við hvernig bachelor endaði.... Haffi varð geðveikt hissa á mér þegar hann komst að því að ég fylgdist með því... held að hann hafi eiginlega bara hneykslast á mér :D vá hvað ég horfi samt lítið á sjónvarp eitthvað... kannski útaf því að ég er eiginlega alltaf einhver staðar annars staðar en heima hjá mér... gæti verið ástæðan :D

fimmtudagur, nóvember 06, 2003

Fór á Verzlóballið í gærkvöld og kom það mjög óvart, því það var bara einstaklega gaman á því.... Var reyndar EINSTAKLEGA mygluð þegar ég vaknaði í morgun en ákvað að vera hörkudugleg og skrópa ekki til að getað sofið meir.... það var samt ótrúlega erfið ákvörðun!! :D
Annað kvöld er svo Óðríkur Algaula og ætli maður skelli sér ekki á það og sjái svo til með framhaldið... semsagt hvað maður gerir á eftir það.... það er pæling sko... ;)
Ég verð nú að hrósa henni Dóru sko!! Gellan sú er byrjuð að blogga aftur eftir þó nokkra pásu... gaman að því :)

laugardagur, nóvember 01, 2003

Já ég semsagt átti afmæli í dag... ég er semsagt orðinn 19 ára vitleysingur :D byrjaði að fá hamingjuóska sms akkúrat á miðnætti og svo var síminn á fullu fram eftir degi... fékk meiri að segja sms og upphringingar frá fólki sem ég átti ekki beint von á að fá frá... en það var nú bara gaman að því... veit ekki um neina manneskju sem gleymdi mér... enda eins gott fyrir þá!! hehe neinei segi nú bara svona! eða jú reyndar... mamma gleymdi því... fattaði það svo 20 mínutum eftir að ég var vöknuð... er það nú sko... hmm.. :D svaka stuð í skólanum í dag... sungið fyrir mann og alles í sálfræðitímanum sem lífgaði reyndar svolítið uppá langann tímann.... svo þegar ég kom heim byrjaði heimasíminn líka að hringja... algert símavændi mætti halda.. :D svo komu gestir og þegar þeir voru farnir dró mamma mig með í búðarleiðangur til að finna afmælisgjöf handa mér... ( fann nú ekkert spes samt) og svo um kvöldið bauð mamma mér og Eddu út að borða... rosa fínt allt... svo bara tók ég því óeðlilega rólega miðað við að þetta er nú ég... horfði á idolið og svo komu Haffi og Krissi með pakka handa mér, geðveikt flott enda er ég ekkert smá ánægð með hann ;) thanx guys!

miðvikudagur, október 29, 2003

Merkisdagur eftir 2 daga!! getið nú....
Annars ætla ég bara að taka því rólega þá... enda verður tekið á djamminu á laugardaginn :D fyrsti föstudagurinn í LANGAN tíma sem ég stefni á að vera bara heima eða eitthvað álíka... nema einhver stingi uppá einhverju heví sniðugu sem ég bara get ekki neitað :D hehe!

þriðjudagur, október 28, 2003

You're Perfect ^^
-Perfect- You're the perfect girlfriend. Which
means you're rare or that you cheated :P You're
the kind of chick that can hang out with your
boyfriend's friends and be silly. You don't
care about presents or about going to fancy
placed. Hell, just hang out. You're just happy
being around your boyfriend.


What Kind of Girlfriend Are You?
brought to you by Quizilla

jahá.... gaman að því...
Við Dóra erum nú alveg ferlegar sko í þessum skólamálum!! ætluðum að vera geðveikt duglegar að læra saman í gærkvöldi en það fór náttúrlega eins og það fer alltaf þegar við ætlum að læra saman.... Förum alltaf að gera eitthvað ALLT annað sko.... vorum bara eitthvað að flippast og læti og svo ákváðum við að kíkja bara smá á rúntinn með rúntfélögunum miklu sko :D hehe! Vorum náttúrlega engan vegin tilbúnar í þetta próf í dag þannig að við tökum það bara í næstu viku, sem er betra...

föstudagur, október 24, 2003

Fórum út að borða í Perlunni í gærkveldi og var það æði! Alltaf jafn frábært að fara þangað :)
Annars er ég búin að laga aðeins til í linkunum hérna til hliðar... og nokkrir nýjir bloggarar búnir að fá link á sig :)

fimmtudagur, október 23, 2003

Vá hvað ég er ekki að fíla þegar kennarinn manns ákveður að vera bara veikur í fyrsta tíma... sem er í þokkabót tvöfaldur og maður er ekki búin að sofa neitt að viti undanfarið... hefði alveg mátt vera síðasti tíminn frekar sko :D ég slapp reyndar við að skila vinnubókinni, sem átti reyndar að skila í síðustu viku en ... whatever!! ;D Þannig að ég er bara að tjilla hérna í skúlen sko.... stuð!

miðvikudagur, október 22, 2003

Já það er sko gaman að þessu lífi !! :D vetrarfríið mitt var þokkalega skemmtilegt og var tjúttað alveg slatti.... ;) þessi helgi var vel heppnuð eins og flestallar og já... sumir myndu segja að hún hafi verið ANSI villt ;D hehe! ætla samt ekki út í nein smáatriði hérna sko .... ;)
svo er vikan bara að fljúga frá manni og alltaf nóg að gera sko!
Svo á pabbi afmæli á morgun og ætlum við öll bara að fara út að borða í Perlunni og rólegheit, sem er mjög fínt og svo er von á fullt af gestum allan liðlangan daginn sko! :) svo styttist nú í mín heilu 19 ár... ;) það er nú barasta í næstu viku!
Já og svo er ég að gleyma svakalegu... sumir ( ætla nú ekki að nefna nein nöfn núna ) þurftu að dúsa í fangaklefa í heila nótt og var bara alger heppni að ég hafi ekki verið með honum akkúrat á þessum tíma! þannig að ég rétt slapp nú við það.... þannig að þetta bættist við í mitt viðburðarríka vetrarfrí !! :D eins gott að ég sé ekki alltaf í fjögurra daga helgi... það yrði nú FREKAR skrautlegt þá!
jæja... læt þetta duga í bili... er að fara út... eins og alltaf!! ;)
see ya babes

laugardagur, október 11, 2003

iss.... leikurinn fór nú ekki alveg eins og maður vonaðist eftir... en gátum nú alveg búist við þessum úrslitum þar sem þetta voru nú Þjóðverjar sem voru að keppa á móti okkur! þrusugóðir verður nú bara að segjast :D