sunnudagur, janúar 29, 2006

i'm da poolmaster! heheheh mátti til ;) plataði ottó með mér í pool á föstudaginn þar sem mér finnst alveg með eindæmum skemmtilegt í pool og það þarf náttúrlega ekki að taka fram hver fór með sigur af hólmi! ;P heheh... ok, ég vann reyndar úrslitaleikinn bara útaf því að ottó klúðraði svörtu kúlunni, en meina, sigur er alltaf sigur, ekki satt ;)

ég er öll að vakna til lífsins með lærdóminn... fórum á bókhlöðuna í gær og vorum þar eiginlega allan daginn og náði ég að læra alveg þónokkuð... nú er bara um að gera að halda þessu striki :)
fórum svo í partý hjá bjarna í gærkvöldi, stoppuðum reyndar ansi stutt þar sem ottó er að fara í mikilvægt próf í vikunni sem hann þarf að læra vel fyrir en þetta var fínt stopp :)
svo er gulli vinur ottós orðinn herra ísland, átti náttla sigurinn skilið í keppninni sjálfri en það fór sem fór en nú kom svo að því að titillinn varð hans eftir að óli geir var sviptur titlinum... glæsilegt það! :)
úff pælið samt í því að vera sviptur titli sem þessum...

anyways.. ætla að fara að koma mér í að lesa girl interrupted fyrir geðheilsufélagsfræðina... þarf að skila 10 bls ritgerð um hana eftir eina og hálfa viku og nenni sko ekki að vera á síðustu stundu með hana þannig að best að fara að drífa sig í lesturinn... :)