föstudagur, maí 25, 2007

vá hvað ég er eitthvað óeðlilega óáhugasöm með þessa ritgerð mína sem ég þarf að skila næsta miðvikudag! ekki það að efnið sé leiðilegt heldur kem ég mér bara ómögulega í að byrja... enda nóg annað að hugsa um þessa dagana... ;) en þarf að dempa mér í þetta sem fyrst þó ég viti svosem alveg að ég verð að skrifa hana kvöldinu áður en ég á skila!

úff það var frekar ógeðsleg frétt í fréttunum hérna fyrr í vikunni... ein kona á österbro lét 9 mánaða barn sitt sofa úti í vagninum fyrir utan hjá sér og allt í lagi með það, en svo heyrir hún það hágráta og fer að tékka á því og þá liggur ROTTA ofan á andliti barnsins og er búið að bíta það í tunguna! SJÆSE!! ég hugsa að ég myndi fá nett taugaáfall ef ég hefði lent í þessu... greyið barnið, segi nú ekki annað!! það er varla að maður muni þora að láta barnið sitt sofa úti.... JAKK
jamm...

annars á Dóra skvísa afmæli í dag, til hamingju aftur með það sæta... :* hafið það kósí í bústað um helgina!



svo er brúðkaup hjá Gróu og Valda núna í júní og kemst ég því miður ekki í það! ýmislegt sem maður missir af þegar maður býr svona í útlöndum...! en við ættum að komast í brúðkaupið hjá Oddi og Önnu í október, þannig að við náum allavega einu brúðkaupi á þessu ári...
en þetta ár ætlar víst að verða svo skemmtilegt, bara allt að gerast... jei jei spennó ;)

Jóhann litli sykurpúði er að yfirgefa okkur í dag og er að fara til póllands með múttu sinni!
:( maður er sko eftir að sakna kútsins!


(gaman að vera hjá ottó)
jess... en er farin að þykjast læra...
tjuss