þriðjudagur, mars 29, 2005

-það ótrúlega kom fyrir í dag... ég var heima frá vinnu enda með ódæmum slöpp... ég sem verð aldrei veik! :D maður á greinilega aldrei að segja aldrei! en þetta var seriously einn lengsti dagur sem ég hef upplifað í langann tíma en ég náði þó að sofa þetta mest úr mér held ég svei mér þá... en þetta á engann við mig, svona heimavera í heilann dag, alveg búin að sjá það :D

-við vala fórum í bíó í gær á miss congeniality 2... þessi mynd er alveg ágæt svosem, ekkert til að hrópa húrra yfir, en vel hægt að horfa á hana... ekta svona mynd sem þægilegt er að horfa á videó meðan maður liggur í þynnku.... :D langt síðan maður hefur kíkt í bíó áður en maður skellti sér á þessa... reyndar fórum við ottó á sideways einhvern tímann í febrúar ef ég man rétt og hún var sko góð... annars er tíminn svo fljótur að líða að maður veit varla hvaða mánuður er lengur... jólin rétt liðin og allt í einu eru páskarnir líka búnir! en nú styttist líka óðum í sumarið og þeirri dásemd sem fylgir því... ;)

læt þetta duga í bili...
Auður :)

sunnudagur, mars 27, 2005

-ji hvað ég er fegin að páskarnir séu bara einu sinni á ári eins og jólin... ekkert nema leti í manni og svo bara hellings páskaeggjaát og alltaf einhver matarboð og ekki nóg með það, heldur er þetta einmitt líka tími fermingaveisla þannig að þetta er einum of fyrir minn smekk! :D allavega... ég verð ekkert miður mín þegar þeir eru liðnir hjá :D jújú auðvitað er nú líka alveg gott að vera í fríi sko... sofa lengur og engar áhyggjur að koma seint í vinnu og svona... ;)

-villi er farinn af landi brott... fór í dag og er eflaust kominn til danaveldis í þessum skrifuðum orðum... núna er samt styttra þangað til maður hittir hann næst en það var mjög gaman að hafa hann hérna hjá okkur eins og alltaf bara... :D

-kíkti aðeins í bæinn á föstudaginn og það var aldeilis fínt! svona að mestu leiti allavega, en maður verður bara að reyna að gera gott úr öllu ekki satt?? :) en já það var allavega PLENTY af fólki downtown og greinilega margir sem eru að njóta þess að vera í fríi... enda ekkert nema gott með það ;)

-gleðilega páska já... það er víst páskadagur, ekki má nú gleyma því :D ekkert smá fallegur dagur... klikkað hlýtt og notalegt veður... við ottó byrjuðum daginn bara snemma sko, kíktum út úr húsi um 10 enda dásamlegt veður og haldiði ekki bara að kallinn hafi farið með mig að kenna mér golf! :D það var sko stuð! þannig að nú fer ég bara að mana ykkur hin í golf ... þetta er nefnilega heví gaman! en ég myndi náttúrlega mala ykkur enda með besta leiðbeinandann! :P heheheh!

"Hóf er á öllu nema hvílukossum einum" er málshátturinn sem ég fékk í Nóaegginu.... hafið þetta í huga krúttin mín! ;)

njótið fríisins!!!!