miðvikudagur, febrúar 08, 2006

vúhúúú... sko mína! náði að klára ritgerðina... reyndar var ég bara rétt svo að klára hana í þessum skrifuðu orðum og á skila henni eftir klukkutíma :$ alger silly billy! heheh ;) en gott að hún er búin, þá þarf ég ekki að hugsa meir um hana...

hey það er vísindaferð í Skjá einn núna á föstudaginn og hljómar það ekkert smá vel enda ætlum við Annika að skella okkur :P mega stuð það, enda langt síðan við fórum saman í vísó... held að það hafi bara verið síðast þegar "hot water" var stofnað (dont ask! ;)) og þá er það alltof langt síðan! heheh...

mig langar ekkert smá mikið að komast aftur í sólina, helst núna í dag bara en myndi samt alveg sætta mig við í sumar... reyndar engar líkur á að það verði sólarlandaferð á dagskránni þetta árið en alltaf gaman að láta sig dreyma... hef verið að skoða hina og þessa bæklinga (svona þegar ég er ekki alveg í lærdómsgírnum ;)) og mig langar að fara til svo margra landa að það hálfa væri meira en nóg... búlgaría, króatía, grikkland, ástralía, og bara you name it, mig langar þangað! :D ef ég ætti sand af seðlum væri bókað mál að ég væri alltaf á ferðinni því að ferðast er bara eitt það skemmtilegasta sem ég veit um!

yfir í annað... sylvía nótt fær að taka þátt í undankeppni eurovision og er ég bara mjög sátt við það... töff lag sem maður fær auðveldlega á heilann... eiga þau ekki einmitt að vera svoleiðis? :P en já, kannksi ekki alveg lag í anda eurovision en það væri bara hipp að senda þetta út fyrir okkar hönd... er reyndar ekki mikill eurovision aðdáandi en held samt að þetta myndi skera sig úr í keppninni og verða eftirminnilegt! :)

mánudagur, febrúar 06, 2006

magnað hvað ég virðist ekki getað klárað skólaverkefni fyrr en skömmu fyrir skilafrest! á að skila 10 bls. ritgerð núna á miðvikudaginn og að sjálfsögðu er nöllinn hérna varla byrjuð að skrifa... maður er nú alveg í ruglinu bara... en jæja, svo lengi sem ég skila þó verkefnunum þá hlýt ég að sleppa.. ;) heheh...

við ottó erum búin að sækja um tvö kollegi í köben og erum við frekar vongóð að fá inni allavega í öðru þeirra... okkur langar samt eiginlega frekar í okkar íbúð en bara málið með það er að þær íbúðir sem eru á markaðnum núna vilja fá leigendur frá mars eða apríl sem er jú alltof snemmt fyrir okkur.. þannig að við getum eiginlega ekkert farið að leita almennilega að íbúð fyrr en í apríl eða maí... mig langar ekkert smá mikið að flytja aftur til holstebro en það er ágætt að prófa köben líka, skólarnir þar og svona... :) svo er ég svo heppin hvað ég þekki marga þar í kring.. villi bróðir í hróaskeldu, dönsk vinkona mín og kærastinn hennar rétt hjá köben , frændfólk mitt býr í köben og svo náttla valan mín í stokkhólmi sem er nú ekkert agalega langt í burtu, allavega styttra þar á milli heldur en héðan frá íslandi ;)

vá hvað mig er samt farið að hlakka til að flytja út... ok veit alveg að það eru alveg 6-7 mánuðir þangað til en alltaf gaman að hlakka til einhvers ;) vissulega verða þetta þvílik viðbrigði en þetta er náttúrlega bara nauðsynlegt fyrir alla... eiginlega frekar hissa á að ég sé ekki löngu farin út en núna er sko kominn tími til... allavega í mínu tilviki...! en já planið er semsagt að fljúga út miðjann ágúst... það getur náttúrlega altaf breyst eins og með allt í lífinu en það er sumsé allavega stefnan núna í dag... og já... það eru litlar sem engar líkur á að ég sé að fara á þjóðhátíð í eyjum þetta árið... sorry elskurnar! veit að sumir eru ekki ánægðir með þetta en svona er lífið maður verður stundum að velja og hafna, ég verð þarna samt þokkalega í anda! ;) síðustu þrjár þjóðhátíðir hafa verið hreint út sagt brjálæðislega skemmtilegar og mun ég bókað mál fara aftur, því miður bara ekki þetta árið... en meina, það kemur önnur þjóðhátíð á eftir þessari, ekki satt? :P