Hvað á þetta brjálaða veður eiginlega að þýða??!! Mér finnst þetta ekkert alltof sniðugt sko... :D Ég og Dóra vorum að rembast við að komast lifandi í World Class og það hefur örugglega verið ansi spaugilegt að sjá okkur berjast um í þessu fárviðri :D En já allavega komust við lifandi á áfangastað og gátum byrjað að púla á fullu!! :D Alltaf jafn mikið stuð að fara í World Class ;) Það eru sumir sem eru barasta alltaf þarna þegar við erum þarna eins og Jói Fel og tveir aðrir sem ég veit reyndar ek hvað heita og einhver gaur sem tók einhvern tímann þátt í Herra Ísland en ég held reyndar að hann vinni þarna þannig að... :D Fólk sem bókstaflega lifir í ræktinni :D og svo voru þarna nátturlega FÓLK með sætar lappir sem hægt var að horfa á... sko á strákinn en ekki á lappirnar :D
Allavega... núna verð ég að fara að klára ritgerðina mína :S vi ses :*
mánudagur, febrúar 10, 2003
föstudagur, febrúar 07, 2003
Jæja þá !! Nú er loksins komin helgi!! ;) Ég er bara nokkuð mikið stolt af mér, er nefnilega EKKERT búin að skrópa síðustu þrjá daga!! :) :) Bara dugleg stelpa sko!! ;) Reyndar voru bara þrír tímar hjá mér í dag... en samt... :D Núna tekur bara helgin við og ég verð líklega önnum kafin við það að gera ritgerðir ... :( :( Ég er náttúrlega með allt á síðustu stundu like ALWAYS... en ætla að reyna að vera svaka dugleg ( sé það samt ekki gerast... :S, jújú ) Veit að sumir eru að fá kærastann í bæinn í dag og aðrir sumir eru að fara í bíó með sumum í kvöld og svo sumarbústað á morgun ;) ;) allavega.... ciao :*
miðvikudagur, febrúar 05, 2003
úff!!! þá er ég víst orðin "bloggari" ;) Lofa ekki að ég skrifi á hverjum degi en mun reyna að standa mig í stykkinu og skrifa eins oft og ég get :) allavega... hmmm... nafnið á síðunni já... þeir sem vilja vita meir um það geta spurt Anniku beib um það þar sem hún fann uppá því fyrir langa löngu :D hehe...
allavega... hætt í bili!! see ya :*
allavega... hætt í bili!! see ya :*
