sunnudagur, maí 04, 2003

Fyrir þá sem ekki vita þá virka ekki linkarnir mínir... er víst ekki enn búin að finna út hvernig maður lagar þá... :S

fimmtudagur, maí 01, 2003

Sögu próf á morgun... ekki líst mér nú á það... :S annars skellti ég mér smá á rúntinn í nótt með Brynhildi og Jón Oddi og það var hörku stuð eins og alltaf :D svo fór ég að lesa þegar ég vaknaði í dag og finnst ég vera búin að lesa heilan helling en samt ekki búin að læra neitt. :S er það hægt?? bara spyr... ;)
svo eftir 10 daga kemur Edda að norðan og flytur aftur heim til okkar :) fatta ekki hvað stúlkukindin var að pæla in the first place að flytja FRÁ okkur.... :D en það verður gegt gaman :)
Allir að hugsa vel til mín í fyrramálið í prófinu.... þeir sem verða vaknaðir það er að segja ... ;D

þriðjudagur, apríl 29, 2003

Veeeeiiiiii.....!!! bra einn skóladagur eftir en svo náttla taka prófin við... en það er bra um að gera að gera sitt besta og maður getur nú varla gert betur en það.... :D þvílik speki hérna hjá mér... :D hhehe :D
allavega ég er ekki enn búin að fá vinnu fyrir sumarið... því miður segi ég nú bara !!! líst nú ekki á blikuna ef ég sit eftir atvinnulaus í allt sumar... :S það yrði disaster!!! Þetta er alveg ótrúlegt sko... er búin að sækja um á fleiri fleiri stöðum en annað hvort fæ ég engin svör eða neitun.... :S þetta sökkar BIG TIME!!!! :S en það er bara um að gera að vera nógu bjartsýn!! :D
úff ég er að fara í uppeldisfræði próf á morgun og í staðinn fyrir að læra undir það er ég bara að tjilla í rólegheitunum... :D en læri örgla fyrir það smá í kvöld með Dóru þannig að við komum ekki alveg óundirbúnar....hmmm.... við að læra saman.... það hefur nú aldrei gengið en við bara verðum núna... annars þurfum við að taka það aftur í næstu viku og ekki nennum við nú því... :D
hmm... náttla ef ég fæ ekki vinnu í sumar get ég náttla bara legið flatmaga í sólbaði og fengið smá lit... :D það er pæling ... en held samt ekki... myndi nú frekar velja vinnuna...
VÁÁÁ!!! ég sá THE PERFECT GAUR í strætó í í gær!!! það var bara óhuggulegt hvað drengurinn var myndarlegur en hefði nú samt ekkert á móti því að kynnast honum betur.. :Þ heheh ... nei nei segi nú bra svona...nenni nú varla að fara að lenda í svona strætó ævintýri ... :D heheh
vá núna er ég nú barasta farin að bulla ... :D og ég er barasta að pælí að fara að hætta þessu bulli... í bili allavega... ;)

sunnudagur, apríl 20, 2003

Shirley Temple-- you're cute around people but
naughty when you get away from the crowd


What's your stripper name? (female)
brought to you by Quizilla

hahah :D þetta er ansi skemmtilegt enda get ég ekki hætt að taka þessi próf.... :D
Ég er búin að sjá það að ég gæti alveg slegið í gegn sem útvarpsleikkona!!! :D Dóra fann svona upptökutæki og við náttla með okkar hugmyndaflug gerðum sápuóperu-útvarpsþátt sem vi náttúrlega tókum upp!! sem heitir by the way því dramatísku nafni "No Peace" :D þetta var alveg svakalegt stuð og við erum komnar með nokkra þætti og munum örugglega halda áfram að gera þá :D svo nýttum við veðrið í gær og skelltum okkur í körfu!! :D semsagt á okkar hátt.... það var líka brjálæðislega gaman en þeir sem hafa verið að fylgjast með okkur (vonandi enginn!!) hafa pottþétt skemmt sér vel!! :D Fór með Völu Rún á Johnny English og mæli sko alveg með henni!! við allavega skemmtum okkur konunglega og hlógum mikið enda nóg til að hlæja yfir :D svo er pælingin að skella sér á Just married í kveld en það er líka partí en ég held samt að ég taki því bara rólega svona til tilbreytingar :D
Gleðilega páska!! ;D

föstudagur, apríl 18, 2003

gaman af þessum prófum :D núna get ég ómögulega hætt að taka þessi próf....


You are a Mango...luscious, exotic and sinfully
sweet...you inspire passion and lust in
everyone you meet...


What Kind of Fruit Are You?
brought to you by Quizilla

heheh gegt kúl :Þ

Your Orli's Sexiness!
Yummy!


What Aspect of Orlando Bloom Are You?
brought to you by Quizilla

hahah :D ég segi nú ekki annað!!! :D

miðvikudagur, apríl 16, 2003

Vá... soltið langt síðan ég skrifaði síðast.... :S Allavega þá er ég komin í páskafrí ;D Síðasta fimmtudag fór ég á BRJÁLÆÐISLEGA skemmtilegt ball!!! við fórum bra tvær af borðinu á það og vorkenndum nokkurn veginn hinum sem fóru ekki því þetta var svo ótrúlega gaman!!!!! :D Við Dóra skelltum okkur og skemmtum okkur konunglega enda sáum við svo fallegt fólk :Þ heheh....
Á föstudeginum var svo brjálað partí hjá Anniku enda átti hún afmæli daginn eftir þannig að það var ástæða til að fagna :) þar var sko GEGT gaman ;D Í partíinu hringdi Láki í mig og bauð okkur í annað partí en við náttla gátum ekki farið fyrr en allir gestirnir voru farnir en sögðumst ætla að kíkja á eftir... Svo fannst honum svo leiðinlegt í partiinu sem hann var í og við ákváðum bra að hittast niðrí bæ þannig að við gætum skutla honum heim enda var hann í ENGU ástandi til að keyra :D en svo vorum við the girlies bra að labba í rólegheitunum í miðbænum þegar hann hringdi og sagðist bra vera kominn heim til sín :D Gæjinn var ansi vel í því enda fór hann á Scooter fyrr um kvöldið... :D Þannig að við gellurnar bra héldu áfram að labba um þangað til við ákváðum að fara bra heim... ;D Svo fór ég í fermingu á sunnudaginn og það var mjög fínt :D
Svo er ég eiginlega ekkert búin að gera af viti núna síðustu daga... :S þarf að laga eina ritgerð og þarf að GERA aðra og ég er bra eitthvað að slugsa ... :D bra búin að hangsa í símanum,tölvunni og smá yfir sjónvarpinu og reyndar líka farið í búðarráp :D ég er bra búin að gera HEIL margt sko ;D og svo í dag ætla ég að kíkja til Dóru og svo þarf ég að passa í kvöld og svo á morgun er ferming og á föstudaginn er einhver svaka veisla hérna hjá okkur :D

fimmtudagur, apríl 03, 2003

Akureyrar ferðin var bara THE ferð sko!!! það er barasta ekkert minna!!! :D þetta var sjúkt skemmtilegt og svo náttúrlega veðurtepptumst við í Borgarnesi á heimleiðinni í 3 heila tíma en það var bra stuð fannst okkur ;D Lögðum af stað frá MH eldsnemma á laugardeginum og leiðin norður gekk nokkuð vel og bra horft á Grease og svoleiðis í rútunni!! :D Um kvöldið var farið á Greifann og við ætluðum að fara bara þaðan beint á keppnina en.... jájá við mætum í Bogann ( nýju höllina á Akureyri) geðveikt fínar og læti og löbbum inn en viti menn...!! Þar er EINN maður í bláum stuttbuxum að sparka í bolta!!! Klukkan var nokkrar mínútur í og við spurðum einhvern kall hvar keppnin væri eiginlega og hann tilkynnti okkur það að hún væri í HÖLLINNI!! sem er HINUM megin í bænum by the way!!!! :D við hringdum svo í Eddu sem var svo elskuleg að koma og keyra okkur í hina réttu höll :D allavega söngvakeppnin var allavega ágæt...mér fannst lögin alveg þokkaleg en kynnarnir ekkert sérstakir og svo datt rafmagnið út tvisvar en ég heyrði að það hafi nú bara verið útaf einhverjum tveimur ölvuðum strákum... :D Ákváðum að sleppa ballinu og skelltum okkur bara niðrí Akureyrarbæ laugardagsnóttina!!! :Þ og það var nú slatti skemmtilegt skal ég segja ykkur enda fullt af öðrum framhaldsskólakrökkum af landinum samankomin í þessum ágætis bæ ;D heheh...anyways núna er ég hætt!! nenni ek að skrifa meir.... :D ciao babes :*