sunnudagur, febrúar 29, 2004

Þetta frí mitt var alveg hreint óhugnalega fljótt að líða !! :( en jæja þá er bara að undirbúa sig fyrir næstu skólatörn en svo styttist náttúrlega í páskafríið sem byrjar sko með stæl ( blikk blikk Annika ;) ) enda allt víst klappað og klárt í sambandi við Gaukinn !
Þessi helgi er nú búin að vera afskaplega róleg... eiginlega rólegasta sem ég man eftir og finnst mér þetta ótrúlega skrýtin tilfinning... enda ekki oft mikil rólegheit í kringum mig ! :D en hún var ágæt samt sem áður, hefði alveg mátt vera minni lærdómur en hey, það er svona að fresta öllu þangað til á síðustu stundu ! sem ég er einum of dugleg við... þarf að bæta úr því ;) vaknaði ELDsnemma í morgun til að skutla mömmu í einhverja verkefnavinnu og þegar ég kom heim aftur gat ég ekki sofnað aftur þannig að ég er bara búin að vera á fullu frá átta í morgun að læra og laga til ( reyndar með örfáum símapásum en þær voru ekkert svo langar ;P ) ! þetta er náttúrlega ekki heilbrigt sko :D hehehe !
Er að hugsa um að setja myndir inná síðuna.... hef bara ekki verið dugleg að taka myndir undanfarið, en fer nú kannksi að bæta úr því, en allavega munu þær örugglega koma héðan og þaðan og ekkert endilega teknar af mér, og ég er að pælí að byrja bara með nokkrum þannig, það er að segja when I get the hang of it ;)

Engin ummæli: