Jæja, ég dreif mig í skólann í gær enda alveg komin með nóg af þessum aumingjaskap i mér! heheh! held samt að ég hafi alveg haft gott af því að vera heima fyrri part vikunnar og reyna að ná þessu úr mér... er altof dugleg að leyfa mér ekki að verða veik, en maður verður víst stundum að taka því með ró...
en já ég er semsagt öll að hressast! fór í vinnuna í dag og var sá tími alveg ótrúlega fljótur að líða enda alltaf gaman í vinnunni! :) leikskólastjórinn kom til mín og vildi endilega fá mig fullt starf í sumar og þó að það sé rosalega freistandi þá veit ekki alveg hvað ég geri... leikskólinn lokar nefnilega í heilann mánuð í sumar og það er svolítið mikið að missa af mánaðarlaunum ef maður fær enga aðra vinnu í þennan mánuð... svona sérstaklega þar sem maður er að fara út í haust og svona... en ég sagðist ætla að hugsa þetta aðeins, enda er ég alveg á báðum áttum....
helgin nálgast óðum og er hún alveg óráðin! ótrúlegt en satt... hugsa að hún verði í rólegri kantinum enda ekki sniðugt að vera að fara á eitthvað svaðalegt tjútt svona nýuppstaðin úr veikindunum... nenni sko ekki láta mér slá niður og veikjast aftur, nei takk!!! þá sleppi ég nú frekar djammi :) ætla svo að reyna að vera dugleg að læra um helgina (meina þetta í þetta skiptið!!) enda fer ég fyrsta lokaprófið mitt eftir bara þrjár og hálfa viku! :S
var að skoða hvað lag var toppnum á billboard þegar ég fæddist og semsagt 31. október 1984 var caribbeaan queen með billy ocean á toppnum... gaman að því ha! ;) en já ef þið hafið áhuga að sjá hvaða lag var að toppnum þegar þið fæddust ýtiði bara hér :P
jájájájá... svona er ég semsagt dugleg að læra... ;)
3 ummæli:
"We Built This City" by Starship ... hehe.. ég veit ekki einu sinni hvaða lag það er! best að fara að tékka á því;)
"Footloose" by Kenny Loggins
heheh stuð bara! :P en ég veit ekki heldur hvaða lag "we built this city" með starship er... kannksi fattar maður það þegar maður heyrir það, en ég kannast ekki við það í fljótu bragði allavega :)
Skrifa ummæli