sunnudagur, mars 12, 2006

vá hvað er alveg ótrúlega jólalegt úti núna.. ég sem hélt að nú væri snjórinn og kuldinn in the past og sólin og hitinn að koma að ylja okkur en svo virðist víst ekki vera í bili!

við ottó kíktum í pool á föstudaginn.. gerðum smá mót úr þessu með verðlaunum og alles en hann vann, en samt bara rétt svo! ég tek þetta næst, ekki spurning ;)
fórum svo í afmælið til litlu kolbrúnar í gær en hún varð 5 ára fyrir stuttu og voru allir krakkarnir mættir í einhverjum ofursætum búningum, algerar rúsinur!
skellti mér svo í partí hjá rakel í gærkvöldi og var það rosalega gaman... fór lítið fyrir drykkju allavega hjá mér, aðrir voru aðeins skrautlegri ;) en já, ég fór ekki með liðinu í bæinn, enda ekki sniðugt að vera að fara á skemmtistaði þar sem reykmökkurinn er yfirgnæfandi þegar maður er á pensílini móti einhverju í lungunum... já svona fór þetta kvef illa í mig! þannig að eftir nokkra malibu kokteila og taumlausa gleði hringdi ég bara á driverinn minn og fór heim að kúra...bærinn fær að bíða betri tíma... enda frekar ógeðslegt veðrið um kvöldið sem var ekki alveg til að bæta það! vaknaði svo eldhress í morgun og til í allt! meiri að segja lærdóm :P

ég ætlaði að vera rosalega dugleg að taka myndir í gær en gleymdi því að sjálfsögðu þannig að ekki koma myndir frá mér inná myndasíðuna úr þessu partí... er samt búin að setja nokkrar myndir frá árinu 2005 inná... þetta eru myndir sem ekki hafa passað inní einhverja tiltekna flokka og eru héðan og þaðan...

framundan munu dagarnir hjá mér líta svona út: skóli, vinna, world class, læra.... reyndar ætlum við ottó að gera okkur smá dagamun næstu helgi og skella okkur í bústað en bækurnar munu samt koma með, enda endalaus lærdómur hjá manni þessa dagana og jú, svona mun það halda áfram út önnina... en það þýðir ekkert væl, bara drífa sig að læra og klára þetta með stæl!! :)

2 ummæli:

Anna Katrin sagði...

YOU VE BEEN HIT BY THE

|^^^^^^^^^^^^|
|BEAUTIFUL truck | |""";.., ___.
|_..._...______===|= _|__|..., ] |
"(@ ) (@ )""""*|(@ )(@ )*****(@

ONCE YOU VE BEEN HIT, YOU HAVE TO HIT 8 Beautiful People IF YOU GET HIT AGAIN YOU LL KNOW YOU RE REALLY BEAUTIFUL! IF YOU BRAKE THE CHAIN, YOU LL BE CURSED WITH UGLYNESS FOR 10 YEARS SO PASS IT HIT WHO EVER YOU THINK IS BEAUTIFUL

Dora sagði...

YOU VE BEEN HIT BY THE

|^^^^^^^^^^^^|
|BEAUTIFUL truck | |""";.., ___.
|_..._...______===|= _|__|..., ] |
"(@ ) (@ )""""*|(@ )(@ )*****(@

ONCE YOU VE BEEN HIT, YOU HAVE TO HIT 8 Beautiful People IF YOU GET HIT AGAIN YOU LL KNOW YOU RE REALLY BEAUTIFUL! IF YOU BRAKE THE CHAIN, YOU LL BE CURSED WITH UGLYNESS FOR 10 YEARS SO PASS IT HIT WHO EVER YOU THINK IS BEAUTIFUL