laugardagur, ágúst 19, 2006

jæja já... þá er maður fluttur af klakanum...

átti án efa nokkra erfiðustu daga mína þegar ég var að kveðja alla sem standa mér næst!!! my girlies og famílían mín... úff það var mun erfiðara en ég bjóst við enda svo miklir gimsteinar öllsömul og ekki annað hægt en að sakna ykkra allra heví mikið strax! love ya all!!! :*

lífið hérna í danaveldi leggst alveg ágætlega í mig bara, smá spes en þetta hlýtur að venjast... :) erum núna búin að vera hjá villa bró í hróaskeldu í tvo daga og förum svo aftur í herbergið okkar í lyngby á morgun... fáum svo íbúðina okkar í albertslund 1.sept.! fórum aðeins að skoða hana í gær, eða semsagt umhverfið og æjh, þetta er nú ekkert voða spes en þetta verður að duga svona til að byrja með allavega :)
erum búin að fara að sækja um kennitölu fyrir ottó, mín er ennþá í gildi frá því að ég bjó hérna, og erum líka búin að fá lækni þannig að þetta er allt að koma til...

fórum við svo í dag í bilka búð sem er by the way alveg huuuuge og voða gaman að versla þarna... settumst svo inn í bistroen í miðjum innkaupum og keyptum okkur franskar og kaldann öl! heví næs! ;)

framundan er svo bara að koma sér inn í allt þetta hérna úti, þetta zone kerfi í DK er alveg einstaklega flókið finnst mér en þetta er svona að síast inn :D svo þurfum við að kynna okkur skólana okkar og allt sem því fylgir!

veit ekki hvað ég blogga mikið næstu daga en ég er allavega á lífi, ætlaði bara aðeins að láta heyra mér! :P


11 ummæli:

EddaK sagði...

Hlakka til að sjá ykkur skötuhjú :) Endilega láttu mig vita þegar þú ert komin með danskt nr :)

Vala Rún sagði...

Gaman að heyra í þér skvísa!;) núna eru bara 6 dagar þangað til ég fer til Stokkhólms þá verðum við í ökufæri frá hvor annarri! hihi svona næstum því..!:) hafðu það rosa gott og hlakka til að lesa fleiri blogg frá DK...

Nafnlaus sagði...

Þín er allavega SÁRT saknað!! Vona bara að þið hafið það sem allra best þarna úti, hlakka til að kíkja í heimsókn, you know where our meeting point is yes?;) hehe

Hér með er ég orðin fastagestur á síðunni þinni..:)

Nafnlaus sagði...

hlakka til sömuleiðis edda! þetta verður svakalegt stuð ;) fórum að kynna okkur skólana í dag þannig að núna finnst mér þetta allt einhvern veginn vera að gerast... :)

úff pældu í því vala hvað sumarið er búið að vera fljótt að líða... bara strax að fara aftur til sverige!! en ég öfunda þig ekkert smá að vera að fara til KRÍTAR eftir bara nokkra daga...! má ég ekki bara koma með í töskunni þinni? ;)

hehe og harpa... er sko alveg með okkar meeting point á hreinu! ;) vona að þið komið bara sem fyrst í heimsókn, er nefnilega strax farin að hlakka til að fá heimsóknir!! :P

Nafnlaus sagði...

Reikna ekki með að Ottó fari að blogga þannig að þú verður að sjá um að blogga fyrir hans hönd líka :)

Nafnlaus sagði...

H? p?ja.. gaman a? heyra fr? ykkur.. Hven?r ? ma?ur svo a? fara a? panta s?r flug til ykkar?

kv.
Vala

Nafnlaus sagði...

Já það verður gaman að fylgjast með ykkur, þannig að þú verður að vera dugleg að blogga ;) Hlakka til að koma út til ykkar....er að vinna í því að sannfæra bigga kallinn ;)

Anna Katrin sagði...

er að vinna í málum við að fá karó til að fá sér vegabréf svo við getum stokkið í heimsókn ;) enda komin tími til að kjérlingin líti nú eikkað út fyrir landsteinanna ekki satt! ;)

Nafnlaus sagði...

skal reyna mitt besta í bloggmálunum ;)

og stelpur.... líst sko vel á þetta hjá ykkur! hlakka til að sjá ykkur sem fyrst! :P

Dora sagði...

Hæ sæta mín :* sakna þin ekkert smá mikið .. :( enda var líka erfitt að kveðja þig ... en ég reyni að kíkja sem allra fyrst í heimsókn til ykkar :) vona að þú hafir það sem allra best :) hver veit nema við skvisurnar 3 komum saman út til þin ;)

Nafnlaus sagði...

líst vel á það rúslan mín! :)