fimmtudagur, nóvember 30, 2006

mér finnst alveg klikkað fyndið hvað beverly hills er klikkað vinsælt hérna út í danmörkinni... það er núna nýbyrjað að sýna það aftur alveg frá byrjun og er þetta í áttunda skiptið sem þetta er endursýnt alveg frá byrjun !! lokaþátturinn var á miðvikudegi og á föstudegi byrjuðu þeir að sýna þetta aftur alveg frá upphafi afþví að áhorfið á þessum þáttum er víst met ! sá náttúrlega alla þessa þætti í den en það kemur fyrir að maður detti inní þetta núna á daginn þegar maður hefur akúrat ekkert að gera... gaman að sjá hvað allir eru smart þarna og svona ;)



annars hef ég mikið verið að velta þessu námi fyrir mér og spá hvort ég ætti að hætta í þessu eða hvað... það var smá meeting í gær hjá kennaranum og hópnum mínum (erum þrjú) þar sem við ræddum þetta þar sem að ég er ekki ein um að vera búin að hugsa um þetta... kennarinn náði aðeins að láta okkur íhuga þetta betur og gefa þessu séns en sagði jafnframt að þetta væri ekki óeðlilegt að við værum að hugsa um þetta þar sem að þetta væri voða algeng hugsun hjá fólki á fyrstu önn í þessu... þannig að ég hugsa að ég sjái aðeins til með þetta framyfir jól og svona...

lenti annars í fyndnu atviki í gær, var nefnilega spurð í gær hvort að ég væri gift! haha! ég kom alveg að fjöllum og svaraði stelpunni bara eins og er og sagði nei en spurði líka afhverju hún héldi það... og þá sagði hún að einn strákur í bekknum hefði séð svo flotta mynd af mér og einhverjum strák og ég var í hvítu og hann er þá búinn að spyrja flesta í bekknum um þetta og er þetta víst búið að vera aðalumræðuefnið í bekknum síðustu tvær vikurnar!! það sem þessir danir velta ekki fyrir sér...!! langar samt að sjá þessa mynd sko... sagði við hana að þetta væri ábyggilega ekki ég á þessari mynd en hún var alveg 100% viss um það! fannst þetta frekar fyndið að þetta lið væri virkilega búin að velta þessu svona mikið fyrir sér útaf einni mynd ;)

anyways...

...ciao í bili...

4 ummæli:

Anna Katrin sagði...

já það væri nú gaman að sjá þessa mynd ;) hehehe en þú veist að það er bæði verið að sína beverly hills og melrose place hérna heima núna. sem er kómíst

Nafnlaus sagði...

fyndið... það er einmitt líka verið að sýna melrose place hérna... þessir þættir virðast vera svona rosalega sígildir! :)

Nafnlaus sagði...

þetta er pottþétt myndin sem er af ykkur þarna í horninu á blogginu þínu, getur það ekki verið ? ;)

Nafnlaus sagði...

hahahaha... kannksi sko... mér finnst hún reyndar ekkert voðalega brúðkaupsleg en það er kannksi bara ég ;)