þriðjudagur, apríl 10, 2007

Öss hvað ég er orðin lélegur bloggari! hef bara voða lítið verið á netinu uppá síðkastið og ekki alveg nennt að henda nýrri færslu inn en svona er þetta bara... :)

Páskafríið var rosalega fínt. Laugardaginn fyrir viku lentu Dóra og co og fórum við Ottó að taka á móti þeim út á flugvöll... þar sem þau voru alveg 7 þurftu þau að panta svona nokkurs konar minirútu og var þetta frekar spaugilegur bíll, héldum að hann myndi detta í sundur á no time þar sem um leið og við settumst upp í hann þá datt einhver huge bútur innan á úr annari hliðinni af! hehe... en bílinn meikaði það! en já, svo kíktum við aðeins með þeim á strikið og fengum far heim. Svo héldu Jóna, Einar og rest áfram til Kolding þar sem þau ætluðu að vera og Dóra og Gísli urðu eftir hjá okkur. Tíminn með þeim leið ansi hratt og voru þau farin áður en maður vissi af :/ en við höfðum það rosalega skemmtilegt og náðu þau að versla og svona...







Þau fóru svo á þriðjudeginum þar sem þau voru að fara áfram til Kolding að hitta frænku Dóru og svona. Sama dag kom svo Vala svala frá sverige og byrjaði suddalega skemmtilegur tími með henni. hehe... aftur var farið í búðir, svo fórum við í svona túristabátsferð, á kaffihús, útað borða, á eitthvað experimentum safn sem var ekkert smá lame ( tók í mesta lagi 20 min að labba þarna í gegn og ekki peninganna virði!) en Ottó fékk að fara í rafmagnsstólinn þannig að hann var aðeins sáttari. ;) Svo vorum við bara eitthvað að dúlla okkur restina af tímanum og var þetta í heild heví næs páskafrí, en ég er aftur á móti EKKERT búin að læra... :S ehemm... en það er seinni tíma vandamál!





haha svona fannst ottó gaman í rafmagnsstólnum!

svo voru auðvitað borðuð páskaegg og gúmmulaði á páskadag en við eigum samt alveg altof mikið súkkulaði eftir! sko, við opnuðum 2 egg, eitt nóa og eitt kólus og eigum þarmeð 4 stór heil egg eftir og fullt af súkkulaði í skál! hehe... en verð nú bara að segja að okkur báðum fannst kólus bera af, það er bara miklu betra og með miklu betra innihaldi eins og þrist, kúlusúkk og öðru GÓÐU nammi... ég hef alltaf fengið nóa frá mömmu og pabba og mér er farið að finnast það minna og minna spes, innihaldið einhvern veginn finnst mér eiginlega EKKERT spennandi og æjh, er bara ekki að fíla það eins mikið og fyrir nokkrum árum! en hey, maybe it's just me ;)

en úr páskaeggja vangaveltum í annað... það styttist heldur betur í að ég eignist aftur lítinn frænda, litli bumbukúturinn hjá Magga og Laufey fer aaalveg að koma í heiminn! hlakka ýkt til að sjá hann :) fyndið hvað þetta er mikið barnaár....

jess jess... en ég ætla að fara að koma mér í lærdóm, enda ekki seinna vænna...

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ :) Mér sýnist Ottó vera kominn með meira hár en ég.... :) Annars þá er ég á leiðinni til DK þann 19.apríl og væri til í að hitta liðið eitthvað....ætla að reyna að nýta þennan dag í það því restin af helginni verður eytt með vodafone liðinu :) Þyrfti helst bara að smala ykkur öllum saman held ég ;) HVað segið þið um það ???

Vala Rún sagði...

hæ darling... takk fyrir síðast, svaðalega svöl mynd af okkur haha, bara svo fólk sé ekki að misskilja þá voru þetta ekki kvikmyndastjörnustælar eins og Ottó hélt fram heldur var alveg skuggalega kalt þarna á bátnum þó það væri sól :) hihi.. heyrumst vonandi soon á skype! stórt KNÚS

Nafnlaus sagði...

Hahaha :D já veistu, hann fer að ná minni hársídd með þessu framhaldi! en hann er að fara í klippingu á fimmtudaginn þannig að þá fær þetta allt að fjúka af!! ;)

en já, ég er allavega meira en til í að hittast þá.. Ottó verður reyndar byrjaður í prófunum en við rífum hann bara aðeins upp úr bókunum, hann hefur bara gott af því! varstu með e-ð sérstakt í huga or?

og vala... við vorum einfaldlega svalastar þarna á bátnum í kuuuldanum!! ;) love ya!!

Nafnlaus sagði...

Nei ekki neitt sérstakt planað, var samt að pæla kannski bara að hitta alla á kaffihúsi eða eitthvað ???? Ég þekki náttla ekki neitt þarna úti hehe :) En já endilega draga ottó uppúr bókunum :)

Nafnlaus sagði...

einmitt, soundar good... :Þ
við verðum bara í bandi, held alveg örugglega að edda og bjarni séu með númerin okkar annars erum við allavegana með þeirra :)

Nafnlaus sagði...

Já verðum í bandi :) ég ætla að athuga hvernig hinir taka í þetta....þægilegast að gera þetta svona heldur en að þeysast útum allt :)