laugardagur, september 20, 2003

Held að síminn minn sé eitthvað að beila á mér.... þegar ég sendi stundum sms þá fær fólk það annaðhvort trilljón sinnum eða bara alls ekki ( sko smsið ;D).... held að það hafi samt verið tímabundið og vonandi komið í lag... þið vitið allavega af því....
Alltaf nóg að gera í skólanum þó að ég þarf að taka mig vel á.... :$ Í gær var ég að passa... reyndar voru það litlu frænkur mínar í þetta skiptið en það var alveg ágætt :D svo kíkti Vala í heimsókn og var það ekki amalegt ! mikið kjaftað og slúðrað eins og vanalega ;) hehe!
Í kvöld er djammið bara málið sko!!

föstudagur, september 12, 2003

Ballið í gær var bara miklu skemmtilegra en við áttum von á... :D semsagt ball sem kom svolítið á óvart.... Var samt ótrúlega mygluð eitthvað í dag í skólanum , en það er nú bara gaman að því ;)
núna er ég víst að fara að passa í nokkra tíma og er ég nú ekkert alltof spennt fyrir því.... útaf því kemst ég líklega ekki í bíó með krökkunum en það skiptir nú ekki öllu, hitti þau bara eftir það og er planið að skella sér á players, getur samt allt breyst.... ;D

fimmtudagur, september 11, 2003

jess.... Sálarballið var um helgina og auðvitað lét maður það nú ekki fara fram hjá sér enda var svo ótrúlega gaman að það hálfa væri nóg.... :D Sálin stóðu sig náttúrlega eins og von var á og tóku meira að segja lagið um Auði :D þetta var nokkuð magnað þó að sumir hafi nú kanski ekki fundið mann.... en það er nú í lagi ;) hefði svo innilega ekki viljað missa af þessu balli!
svo er ball aftur í kvöld og ætlum við stelpurnar að skella okkur á það... botnleðja að spila og alles... ekkert smá fljótt að verða uppselt enda náði ég rétt svo miða.... þarf svo ekki að mæta fyrr en klukkan 11 á morgun... það er sko ljúft ;)

þriðjudagur, september 09, 2003

jæja... já ég get verið asni.... ég ætla svona formlega að biðja einn vissan aðila afsökunar á fyrrum ummælum mínum hér á síðunni sem ég er þó búin að breyta.... smá fljótfærni í mér að fara að ásaka fólk án þess að vita hið rétta.... ég var svolítið ringluð og vissi ekki betur... :S þannig að, fyrirgefðu .... þó að ég hafi ekki hugmynd um hvort viðkomandi muni lesa þetta, en það nær þá bara ekkert lengra...

sunnudagur, ágúst 31, 2003

Djöfull skemmti ég mér vel í gær/nótt!!! þetta var bara æði pæði sko!! ég og annika( by the way annika þú rokkar!! :D) ákváðum að skella okkur á djammið og þegar niðrí bæ var komið hittum við Rakel og hennar kall og skelltum okkur barasta á Gaukinn.... þetta var nú BARA gaman! eyddi reyndar allt of miklu í barinn en það verður bara að hafa það :D enda alveg þess virði sko ;) svo náttúrlega hittum við fullt af kunnulegu fólki við gáfum okkur á tal við og bara gaman að því!
enda ekki verra að hitta einhverja sem maður þekkir, svona á djamminu :D svo í dag er nóg að gera.... verð að planleggja það aðeins betur.... en vá... er að pælí að fara að sfoa aftur....

laugardagur, ágúst 23, 2003

Jæja.... kannski kominn tími til að skrifa eitthvað á ný... :D byrjum bara á verslunamannahelginni... þetta var BRJÁLAÐ stuð sko... mæli með þessu fyrir þá sem eru að pælí að fara á næsta ári... allavega ætla ég aftur til eyja þá :D hehe.... Láki og Skafti ákváðu á síðustu stundu að skella sér bara með og ekki var það sko verra *blikk blikk* :D alltaf gaman þegar fleiri myndarlegir bætast í hópinn :D já allavega... man voða lítið eftir brekkusöngnum þó að ég hafi setið í brekkunní á meðan... :D var svolítið skrautleg bæði kvöldin... en það er bara fjör... hitti strák og við byrjuðum saman eftir að við komum heim... svaka fjör ;)
fór á rúntinn í gærkveldi með Jón Oddi og Ragga og var það ekkert smá gaman :D lentum í smá eltingarleik og þetta var orðin eins og hin besta spennumynd :D
annars er skólinn byrjaður aftur og leggst það bara mjög vel í mig verð ég segja... hætti að vinna á mánudaginn og var það bara ágætt... ekki beint draumavinnan... :D
svo var náttúrlega menningarnóttin síðustu helgi og var það ekkert smá gaman!! Fór með Dóru og svo hittum við Anniku og Karó, ég og Annika með drykkina í lagi og flottheit :D gerði nokkra skandala en það er bara fjör :D hitti allavega ótrúlega marga og fengu útvaldir saklaust knús frá mér eins t.d. Danni og svo tveir gaurar sem við hittum og voru þeir ekkert smá cool.... :D
svo er það kvöldið.... hvað ætti maður að gera af sér ....? annað hvort partí og djamm eða stuðamanna ball á selfossi... nenni samt örugglega ekki austur þannig að ég djamma lílega bara hérna í bænum... :D er samt ekki búin að vera heima hjá mér eitt kvöld ábyggilega síðustu 6 helgar... finnst mér það svolítið spaugilegt :D en til hvers að vera heima hjá sér þegar maður getur verið úti að skemmta sér?? :D fer kannski að chilla aðeins á djamminu í haust en efa það nú samt sko...:D hehe
það kemur allavega í ljós...

föstudagur, ágúst 01, 2003

jæja nú styttist allsvakalega í þjóðhátíð... :D en eins og flestir vita þá förum við á morgun, með herjólfi... svaka stuð mar ;)
ættarmótin tvö sem ég fór á ásamt famíliunni minni voru bæði alveg ágæt... reyndar byrjaði seinni ferðin ekki vel þar sem það var keyrt aftan á okkur þegar við vorum að fara í gegnum göngin... :S en það sást nú eiginlega ekkert á okkar bíl en hinn bíllin beyglaðist nokkuð að framan... en við vorum í rétti og allt í góðu með það þannig að þegar skýrslan var útfyllt héldum við áfram eins og ekkert hafði í skorist :D
vá hvað ég hef séð fallega stráka afgreiða í búðum núna undarfarið... :P *slef* málið er að ég hef eiginlega lítið sem ekkert farið almennilega í búðarráp núna í sumar eftir að ég byrjaði að vinna en svo þegar ég skelli mér þá bara er allt morandi í fallegum afgreiðslugæjum :P
núna á ég bara 11 vinnudaga eftir... ;) ekki slæmt það.... er ekki búin að ákveða hvort ég ætli að taka að mér helgarvinnu þannig að það verður bara að koma í ljós þegar skólinn byrjar... það verður stuð að hitta krakkana aftur og fá stundatöfluna og svoleiðis...
fór með Dóru á what a girl wants á stelpudögum og það var bókstaflega TROÐIÐ í salnum! það þurfti að ná í aukastóla til að setja í tröppurnar :D :D enda kostaði nú bara 300 krónur og voru strákarnir í salnum í MIKLUM minnihluta :D held að við höfum séð 5 :D
jáh pælið í því gott fólk að eftir sólahring verð ég bara á hörkudjammi í eyjum..... maður ætti kannski að ná sér í eyjapeyja... ;D hehe :D ætli það, þar sem meirihlutinn þarna verða líklega úr reykjavík eða álíka :D :D
jæja... ætli það sé ekki bara best að fara að pakka og svoleiðis... skemmtið ykkur bara brjálæðislega (ég veit að ég ætla að gera það :D) ciao ;)

miðvikudagur, júlí 09, 2003

er komin með miða til eyja!!!!!!!!! :Þ ekki er það nú amalegt :D nú er bara að telja niður dagana .......25 dagar! það er ekkert minna!! en það er nú samt einum of langt í verslunarmannahelgina finnst mér, en þetta er svo fljótt að líða mar að ég verð ábyggilega byrjuð í skólanum áður en ég veit af... :S
er að fara á ættarmót núna um helgina og LÍKA helgina eftir það .... ég ætti að vera vel kunn mínum forfeðrum eftir þetta alltsaman :D efast nú samt einhvern veginn um það :D hehe :D
fór á charlies angels 2 á sunnudaginn með Völu svölu :D og skemmtum við okkur konunglega þrátt fyrir að þurfa sitja næstfremst :D :S vorum samt allveg komnar hálf 8 og vorum ótrúlega framalega í röðinni en svo þegar við komum inní salinn var hann örfáar mínutur að fyllast....en þetta reddaðist nú allt og var þetta mikið fjör :D ákváðum að rölta aðeins um tívolið svokallaða þar sem við vorum nú í smárabíói en þar voru eiginlega bara 13-15 ára krakkar (fyrir utan sætu ensku strákana sem voru að vinna þarna :D) þannig að við nenntum nú ekki að hanga þarna og yfirgáfum svæðið :D

fimmtudagur, júlí 03, 2003

haha :D tók strætó í morgun og auðvitað þurfti íraninn að vera þarna líka.. :S en það var allt í lagi... þóttist ekki sjá hann og þar sem það sat einhver annar kall hliðiná honum þá átti ég ekki von á að hann myndi koma að tala við mig :D hjúkket mar
:D slapp núna en þarf að taka sama strætó á morgun... :S mér vantar eiginlega svona strætó kærasta til að losna við þennan kall ( þannig að hann haldi að ég sé á föstu) :D :D hehe ;) en já annars var þó nokkuð mikið að gera í vinnunni í dag... og svo eftir vinnu skelltum við mæðgurnar okkur niðrí bæ til að labba niður laugarveginn þar sem það er ár og öld síðan við höfum gert það saman og var það mjög skemmtilegt :) keypti mér svona einhvern veginn kínaskó( heita örugglega ekkert kínaskór, dettur bara ekkert annað í hug :D) og var mjög svo sátt við þau kaup :D enda get ég ekki séð hvernig hægt er að eiga of mörg pör af skóm... ;D :D allavega fæ ég aldrei nóg af skóm :D

þriðjudagur, júlí 01, 2003

fyndið hvað lífið getur verið ótrúlega fyndið stundum... :D það var írani að hözzla mig í strætó ... ég var sko að vinna á laugardaginn og þegar ég var búin tók ég strætó heim.... í ártúni komu tveir útlenskir menn inná strætó og allt í lagi með það... svo fer annar maðurinn úr og hinn sest hliðiná mér... það voru 4 manneskjur í strætó nota bene.... hann fer að spurja mig um einhverja ferðaskrifstofu en ég gat ósköp lítið hjálpað honum með það... svo fer hann að spurja hvort ég væri "student" og hvað ég væri gömul... þegar ég var búin að svara þá kemur allt í einu.. :" you are very beautiful" og ég bara "what?!?!" enda farin að halda að kallinn væri á einhverju :D en hann segir aftur að ég væri "very very beautiful" og fór svo að segja mér að hann yrði hérna á Íslandi í 3 mánuði og hvort ég vildi ekki "make friendship" ... ég bara sagði "no thanx" en hann lét það nú ekki stoppa sig... oooo nei... ( hann sagðist sko búa í víkurási og það er sko einni eða tveimur stoppustöðum á eftir minni!!)... ég ýtti á bjölluna í mínu mesta sakleysi og stóð upp og ætlaði að fara þá kom hann á eftir mér og fór líka úr strætónum... maðurinn ætlaði sko alls ekkert að gefa sig og sagðist ennn og aftur vilja bjóða mér hvert sem ég vildi, til dæmis á "expensive restaurant" eða eitthvað :D og ég neitaði enn og aftur en hann sagðist nú vilja láta mig fá nafnspjaldið sitt og ég sagði bara ok við því (svona til að losna einhvern tímann við hann :D) og svo sagðist hann vonast til að hitta mig allavega aftur í strætó... :S núna er ég ekkert voða spennt fyrir því fara í strætó :D þetta hefði verið í fínu lagi ef þetta hefði verið einhver sem ég hefði áhuga á en.... þetta var samt ekkert smá fyndið þar sem ég átti engann veginn von á að lenda í einhverju svona á leiðinni heim :D vinnan gengur mjög vel en það getur samt verið ótrúlega leiðinlegt ef það er ekkert að gera... :S en það reddast nú alveg :D er að vinna aftur núna á laugardaginn... og kvöldvakt á föstudaginn en svo er ég í fríi næstu tvær helgar eftir það :D báðar þær helgar fer ég á ættarmót þannig að næstu helgar verða frekar rólegar bíst ég við... en svo kemur náttla verslunarmannahelgin... þá verður sko djammað enda er förinni heitið til EYJA!!! ;D gaman að þessu