miðvikudagur, mars 19, 2003

jebbss...... ég er mætt aftur!! :Þ ´það er nebbla búið að vera bölvað vesen á tölvunni minni núna síðustu daga!!! :Z við sendum hana í viðgerð en hún lagaðist ekkert við það og svo sendum við hana aftur í viðgerð og þá var sett nýtt stýrikerfi og eikkað svaka sniðugt í tölvuna..... hef reyndar ekkert vit á þessu en þetta er allavega gegt kúl núna :D ég man nú ek einu sinni hvað ég er búin að bralla síðustu daga..... huxi hux...... ég og Dóra fórum í ensku í síðustu viku og kennarinn bað okkur um að um að tala við hana eftir tímann og viti menn..... hún hellti sér allsvakalega yfir okkur og skellti hurðum og læti!! bað okkur um að skrifa bréf til hennar og útskýra afhverju við héldum að við ættum rétt á að sækja þessa tíma og hún sagðist sko aldeilis ætla að tala við deildarstjórann!! Það fyrsta sem við gerðum eftir þetta var að ná í svona úrsagnar blað og fylla það út. Svo ætluðum við að láta kennarann skrifa undir og hún hélt að við værum bra að koma að tala við sig um þetta og sagði " þetta var einróma hjá mér og deildarstjóranum, þetta er búið!!!" haha... eins og einhver svaka sambandsslit... þetta er búið!! :D drama í gangi hjá henni!!! :D Svo var söngkeppnin núna á föstudaginn og hún var hroðalega flott!!! Benni og Vala stóðu sig eins og hetjur með sitt lag, gegt sæt saman á sviðinu og Ingrid stóð líka eins og hetja :) þetta var brjálæðislega flott hjá þeim öllum ;) fatta ekkert í dómurunum að setja þau ek í nein sæti...!!!! hmm.... :S það er svona :D vá verð að fara ;) see ya :)

föstudagur, mars 07, 2003

Talandi um að vera á niðurleið í náminu!! :S Allavega í sambandi við íslensku ritgerðina mína.... eeeeen..... ég og Dóra MÆTTUM actually í ensku í dag!!! sem er MJÖG jákvætt og hún var surprisingly nice við okkur þrátt fyrir alla fjarveruna hjá okkur!! :D sem er alls ek verra sko!! Fengum valblaðið í dag en eigum víst líka að gera þetta í gegnum netið :S sem mér finnst ekkert allt of sniðugt en það þýðir víst ekkert að vera að mótmæla starfsseminni í skólanum....!! hmm.... :D

þriðjudagur, mars 04, 2003

Fór á The Ring í gær með Dóru og vá...!! Þetta var engin smá mynd skal ég segja ykkur!! Gegt góð samt þannig að ég mæli alveg með henni sko.... bra svolítið spooky.... en það er bra gaman ;D hehe... Það var alveg hellingur öskrað en það vorum ekki við þó að ég hafi hrokkið svolítið oft við :D Á sunnudaginn kom Dóra til mín og svo hringdi síminn hennar og okkur boðið á rúntinn!! Við náttúrlega vorum ekki lengi að þiggja það þannig að Hjalli kom og sótti okkur á nýja bílnum sínum :D Svo er bra framundann að skila einhverri svakalegri rtigerð í íslensku :S Líst nú ekkert alltof vel á það en það reddast.... vonandi :D

sunnudagur, mars 02, 2003

Fór á Verzlósýninguna aftur á föstudaginn!! Fór núna með litlu frænku afþví henni langaði svo að fara með mér þannig að ég ákvað að skella mér með henni :) það var líka bra fínt! Fór austur í gær og ætlaði að vera gegt dugleg og nota tækifærið í að læra en nei.... ég bra sofnaði eða fann mér eitthvað annað að gera :S ek var nú mikið lært þann daginn!! :S Svo er ég nú ek búin að læra mikið í dag og í kvöld fer ég líklega til Dóru þannig að ek læri ég þá :D haha... alltaf hægt að finna sér afsakanir :D

föstudagur, febrúar 28, 2003

Dora has just left the building!! :D og ek nennti ég að fara að sofa né læra þannig að ég ætla bra að skrifa smá hér ;D Lenti í MJÖG furðulegu atviki í dag :S Dóra og ég vorum að labba heim til hennar þegar gamall kall með engin smávegis gleraugu stoppar okkur og spyr okkur " eruð þið kunnugar um hvort Mississippi er í Bandaríkjunum?" við héldum það nú og þá fór hann eitthvað að tala um að þar væri á og í henni væru sko krókódílar sem gætu étið bra allt og alla eins og það leggur sig :D og við stóðum bra þarna eins og illa gerðir hlutir að hlusta á greyið kallinn og vorum að berjast við að springa ek úr hlátri sem var MJÖG erfitt og svo þegar við löbbuðum af stað frá honum þá sprungum við endanlega !! :D þetta var bara skondið!! héldum að hann ætlaði að fara spyrja til vegar en nei.... :D svona er lífið oft fyndið!! ;D

miðvikudagur, febrúar 26, 2003

BORING!!! Hef akúrat EKKERT að gera :S nenni nebbla ek að gera það sem ég á að vera að gera :D þetta er líklega önnin sem ég hef staðið mig verst í skólanum... vona að það verði mér bra ek að falli :S
Ég hefði ekkert á móti því ef einhver myndi setja á markað eitthvað sniðugt sem lætur mann fara að læra!! ;D
Ég er alveg að brillera hérna!! búin að setja tag -board inná og alles... :D svo er bra málið að redda linkunum sem fyrst ;)
Núna eru linkarnir loksins komnir en þá virka þeir ekki :(
TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ EYÞÓR!!! hitti hann bra ekkert í skólanum í dag til að óska honum til hamingju...:( og hef svo ekki hugmynd um hvort hann eigi eftir að sjá þetta en allavega!! :D núna væri kannski sniðugt hjá mér að kíkja soltið í bók fyrirprófið á morgun... hmm... eða kanski bra fara að laga til... pabbi sagði að tölvukallinn myndi að koma um eitt og bað mig vinsamlega um að vera búin að laga til uppi hjá mér og þar sem ég kom heim 5 mín í eitt þá VARÐ ég barasta að henda öllu inní skáp og þannig að núna er ég að pælí að fara að taka útúr skápnum og kannski laga aðeins til...